Innlent

Lögreglan lýsir eftir Karel Atla

Karel Atli Ólafsson.
Karel Atli Ólafsson.
Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karel Atla Ólafssyni, 17 ára. Karel Atli fór frá heimili sínu í gærmorgun um klukkan hálfsjö og hefur ekki komið heim til sín eftir það. Mjög líklegt er að hann haldi sig á höfuðborgarsvæðinu, að sögn lögreglu.

Þegar Karel fór að heiman var hann klæddur í svartar buxur, svarta sokka og enga skó. Að ofan var hann í grænum jakka. Karel er um 170 cm. á hæð, grannvaxinn og ljósrauðhærður.

Þeir sem hafa orðið varir við ferðir Karel Atla eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480-1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×