Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar auka þjónustu við innflytjendur 28. febrúar 2006 21:00
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kynntu í dag áætlun um aukna þjónustu við íbúa af erlendum uppruna en þeim hefur farið fjölgangi í sveitarfélaginu á síðustu árum. Pólverjar eru fjölmennasti hópur innflytjenda í Hafnarfirði en þar býr einnig fjöldi fólks frá Eystrasaltslöndunum, Rússlandi og fyrrum Júgóslavíu. Áætlunin um aukna þjónstu við innflytjendur var kynnt í Pólsku búðinni Stokrotka. Eigandi búðarinnar, María Valgeirsson, á sæti í samráðshópi sem settur var á laggirnar í árslok árið 2004 sem ætlað er að vinna að málefnum innflytjenda og koma með tillögur til að efla þjónustu við innflytjendur. Íslenskunám í samvinnu við hafnfirsk fyrirtæki og upplýsingabæklingur um þjónustu bæjarins er meðal þeirra hugmynda sem eru orðnar að veruleika, en bæklingurinn er útgefinn á fimm tungumálum. Bærinn er auk þess með þjónustusamning við Alþjóðahús en vikulega er boðið upp á viðtalstíma ráðgjafa og lögfræðings Alþjóðahússins í Félagsþjónustunni í Hafnarfirði. Þá er ráðgert að halda alþjóðlega söngvakeppni á Björtum dögum nú í sumar, í samstarfi við Alþjóðahús, auk þess sem unnið er að tillögum um móðurmálskennslu fyrir börn innflytjenda.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira