Óljósar kröfur útvegsmanna 9. september 2004 00:01
Erfitt er að semja um kjör þegar viðsemjandinn veit ekki hvað kröfurnar hans kosta, segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands og beinir orðum sínum að Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þar standi hnífurinn í kúnni í kjarabaráttunni. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir ummæli formanns sjómanna koma sér á óvart: "Ég hélt að viðræðurnar væru í öðrum farvegi en þessum. Á síðasta fundi ríkissáttasemjara var ákveðið að sitja yfir kjaramálunum alla næstu viku og markmiðið er að ná saman." Sævar segir vilja útgerðarmanna óljósan: "Þeir hafa ekkert reiknað í dæminu og vita ekki hvað þeir eru að fara fram á. Það er klárt. Sáttasemjari er búinn að biðja báða um tölur. Við höfum reitt þær af hendi og einnig hvað við teljum að felist í kröfum útgerðarmanna í peningum en ég hef ekki séð þessar tölur frá LÍÚ." Friðrik segir tölurnar liggja fyrir. Útvegsmenn gefi sér forsendur og reikni út frá þeim. Þær tölur þekki Sjómannasambandið. Ekki sé hægt með óyggjandi hætti að segja hver þróunin í sjávarútvegi verði næstu árin. Forsendurnar sem menn gefi sér geti því verið misjafnar. Sævar segir útvegsmenn vilja ganga lengra en gert hafi verið með gerðardómnum árið 2001. Þá hafi verið tekið á fækkun mannafla um borð í skipunum. "En þeir vilja meira; mikill vill meira. Þeir vilja ganga lengra og taka það sem sparast til sín en ekki færa það þeim sem vinna störfin," segir Sævar og bætir við: "Við getum ekki lagt fyrir okkar umbjóðendur, sem þegar hafa lækkað um nær 20% í launum frá árinu 2002, samning sem lækkar laun þeirra." Friðrik segir ekki vilja útvegsmanna að lækka laun sjómanna. "Það vita jafnt sjómenn sem Sjómannasambandið. Ef þeir fá öflugri skip þá veiða þeir meira og fá hærri laun. Við erum að tala um að mæta breyttum aðstæðum í sjávarútvegi." Sævar segir að það komi að verkfalli sjómanna. "Við höfum yfirleitt haft afar góða þolinmæði. Undangengin tvö til þrjú skipti höfum við leyft þeim að draga okkur á asnaeyrunum í tólf til sextán mánuði. Núna eru þeir orðnir níu," segir Sævar.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira