Metaðsókn að sundstöðum í sumar 9. september 2004 00:01
Metaðsókn var að sundlaugum í sumar og þakka menn það hitabylgjunni sem gekk yfir fyrri hluta ágústmánaðar. "Það ber að taka þessum tölum með fyrirvara þar sem fjórar sundlaugar voru lokaðar hluta ágústmánaðar," segir Erlingur Þ. Jóhannesson, íþróttafulltrúi hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur sem rekur sundlaugar borgarinnar. Talsverðar framkvæmdir fóru fram við fjórar sundlaugar í ágúst, Vesturbæjarlaug, Sundhöllina, Breiðholtslaug og Árbæjarlaug og segir Erlingur að tímasetningin hafi verið afar óheppileg með tilliti til hitabylgjunnar sem gekk yfir fyrrihluta mánaðarins. "Það var þó lítið við því að gera þar sem slíkt er ákveðið með marga mánaða fyrirvara en þetta hafði talsverð áhrif á þann fjölda sem kom í sund í þeim mánuði. Þrátt fyrir það er heildarfjöldi sundlaugargesta á árinu rúmlega 1,3 milljónir og aðeins 40 þúsund færri í ár en á síðasta ári þrátt fyrir lokanir í ágúst. Gísli Kristinn Lórenzson, forstöðumaður sundlaugarinnar á Akureyri, segir aðsóknina hafa verið framar öllum vonum á árinu. "Miðað við árið í fyrra sem var í daprari kantinum hefur gestum fjölgað um 43 þúsund það sem af er árinu. Alls hafa 270 þúsund komið hingað og ég er að gæla við að ná 300 þúsundasta gestinum inn fyrir áramót. Það er því um mikla aukningu að ræða og það skýrist fyrst og fremst af frábæru sumri."
Fréttir Innlent Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Fleiri fréttir Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Sjá meira