Utangarðsmenn gegn leiðindunum 29. apríl 2005 00:01
Þingkosningar fara fram í Bretlandi á fimmtudaginn. Mörgum hefur þó þótt skorta á spennu í kosningabaráttuna enda benda allar skoðanakannanir til að Verkamannaflokkur Blairs forsætisráðherra fái endurnýjað umboð til að halda um stjórnartaumana þriðja kjörtímabilið í röð. Þeim til upplyftingar sem þykir svo spennulaus kosningabarátta leiðinleg vill til að upp á hana lífga menn eins og "gólandi lávarðurinn" Alan Hope, Biro lávarður og Kapteinn Beany. Allt í allt eru um 3500 manns í framboði fyrir fleiri en 100 flokka í hinum 646 kjördæmum Stóra-Bretlands. Þessir frambjóðendur spanna allt litróf stjórnmálanna, frá harðlínukommum til hægriöfgamanna. Sumir vonast til að athyglin sem þeir fá sem frambjóðendur nýtist til að vekja athygli á einstökum málum, svo sem Íraksstríðinu eða að hassneysla verði gerð lögleg. Aðrir eru einfaldlega sérvitringar: Flokkur herskáu Elvis-kirkjunnar og Nýi þúsaldar-baunaflokkurinn eru dæmi um slík framboð. "Ég veit að ég mun ekki sigra," segir Alan "gólandi lávarður" Hope, glaðsinna leiðtogi Opinbera skrímslis-hringlandi-brjálæðinga-flokksins (The Official Monster Raving Loony Party). "Allt sem ég vil er að fá kannski fimm til sex þúsund atkvæði, bara til að koma hinum flokkunum til að hugsa: hvað erum við að gera rangt?" Flokkur Hopes hefur verið kallaður "guðfaðir" slíkra sprellframboða í Bretlandi enda stofnaður fyrir 41 ári. Kosningamottó hans hefur frá upphafi verið "Kjósið brjálað; þið vitið að það er það eina sem vit er í". Sporgönguflokkarnir eru nú orðnir margir. Þar á meðal er Nýi þúsaldar-baunaflokkurinn, en fyrir honum fer Kapteinn Beany, sjálfskipuð ofurhetja sem baðar sig í bökuðum baunum - og Flokkur herskáu Elvis-kirkjunnar, sem Biro lávarður, einlægur aðdáandi rokkkóngsins, fer fyrir. Flokkur Biros berst meðal annars fyrir því að bannað verði að auglýsa ruslfæði í skólum og á sjúkrahúsum, vegna þess að "Elvis var fíkinn í ruslfæði og við vitum öll hvað það gerði honum".
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira