Ekki sammála um niðurstöðu 29. apríl 2005 00:01
Fulltrúar ítalskra og bandarískra yfirvalda, sem rannsökuðu lát ítalska leyniþjónustumannsins Nicola Caliparis sem skotinn var í Írak í byrjun síðasta mánaðar, komust ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu beggja aðila sem bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér í dag. Rannsóknarmönnunum var falið að kanna hvort bandarískir hermenn hefðu gerst brotlegir þegar þeir skutu á bíl sem Calipari var farþegi í ásamt ítölsku blaðakonunni Giuliönu Sgrena sem ítalskir leyniþjónustumenn voru nýbúnir að frelsa úr gíslingu. Calipari lést þegar hann kastaði sér yfir Sgrena til að hlífa henni við kúlnahríðinni. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum, sem lekið var í fjölmiðla fyrr í vikunni, var talið að hermennirnir hefðu aðeins fylgt bardagareglum og því lagt til að þeim yrði ekki refsað. Sú niðurstaða olli mikilli reiði á á Ítalíu og kallaði stjórnarandstaðan hana móðgun við Ítali. Í yfirlýsingunni sem send var út í dag kom fram að rannsókninni væri lokið en ekkert var gefið upp um endanlega niðurstöðu. Hins vegar var sagt að fulltrúar hvorrar þjóðar í rannsóknarnefndinni hefðu greint yfirvöldum í sínum löndum frá niðurstöðunni. Þegar málið kom upp olli það nokkurri spennu milli þjóðanna og þær hafa síðan deilt um atburðarásina þann 4. mars þegar Calipari var skotinn til bana. Bandaríkjamenn halda því fram að bíll Caliparis og Sgrena hafi nálgast varðstöð Bandaríkjanna á fullri ferð og að allar viðvaranir hafi verið virtar að vettugi en Ítalir segja bílinn hafa verið stöðvaðan samkvæmt fyrirmælum bandarísku hermannanna sem síðan hafi hafið skothríð á hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Sjá meira