Lífið

Fljúga frá Ástralíu til að sjá Frostrósir

Craig Murray og unnusti hans Darryl Brown (t.h) eru miklir nautnabelgir og ferðalangar og setja það ekki fyrir sig að koma alla leið til Íslands til að sjá Frostrósir.
Craig Murray og unnusti hans Darryl Brown (t.h) eru miklir nautnabelgir og ferðalangar og setja það ekki fyrir sig að koma alla leið til Íslands til að sjá Frostrósir.

„Við verðum í Noregi um jólin og áramótin en þegar við fréttum af þessum tónleikum fannst okkur lítið tiltökumál að bæta Íslandi á listann,“ segir Ástralinn Craig Murray. Hann hyggst fljúga alla leið til Íslands og vera viðstaddur jólatónleika Frostrósa sem haldnir verða á Akureyri um miðjan næsta mánuð. Murray er að eigin sögn forfallinn Eurovision-aðdáandi og hefur verið allar götur síðan Abba-flokkurinn kom, sá og sigraði árið 1974. Hann ætti því að fá nóg fyrir sinn pening enda troða upp á tónleikunum þrír söngvarar sem eru með slíka reynslu á bakinu: þau Friðrik Ómar, Regína Ósk og Hera Björk.

Craig upplýsir að hann hafi notið liðsinnis Heru Bjarkar við að panta sér hótel og miða á tónleikana en hann, ásamt félaga sínum Darryl, ætla einnig að skoða Reykjavík og fara ferðamannaleiðina Þingvellir-Gullfoss-Geysir. Hann viðurkennir að þetta hljómi ekkert sérstaklega rökrétt, að fara frá Ástralíu til Íslands og hlýða þar á jólatónlist, en: „Það kom okkur bara svo stórkostlega á óvart hvað allt er ódýrt á Íslandi, flugið til Akureyrar kostaði nánast ekki neitt.“ Eitthvað sem kemur ekki til af góðu.

Craig verður hins vegar ekki sleppt án þess að hann sé spurður út í frammistöðu Heru Bjarkar í Osló sem vakti mikla athygli en fékk ekki mörg stig. „Ég var mjög vonsvikinn með niðurstöðuna, ég hélt í alvöru að hún væri að fara að vinna þessa keppni og trúði því.“ - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.