Innlent

Á meðal stærstu fyrirtækja Evrópu

Tvö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Evrópu. Fyrirtækin sem um ræðir eru SH, sem er í öðru sæti, og SIF Group sem er í því þriðja. Stærsta sjávarútvegssamsteypan í álfunni er hins vegar spænska fyrirtækið Pescanova. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu IntraFish sem gefin verður út í vikunni. Norska fyrirtækið Fjord Seafood og Royal Greenland deila sjötta sæti listans en ekkert færeyskt fyrirtæki er á listanum yfir 25 stærstu fyrirtækin, né á listanum yfir þau 25 fyrirtæki sem mestar væntingar eru bundnar við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×