Kópavogur greiðir meira 13. ágúst 2004 00:01
Kópavogsbær hefur greitt mun hærra verð fyrir vatn frá Orkuveitu Reykjavíkur undanfarin ár en önnur bæjarfélög. Það hefur kostað bæjarfélagið yfir sjötíu milljónir króna. Aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur undrast að Kópavogsbær hafi ekki reynt að ná verðinu niður. Reykjavík og Kópavogur deila nú um eignarhald á landi í Vatnsendakrikum þar sem Kópavogur vill bora eftir vatni og leiða inn í bæinn. Umræður um vatnsverð og vatnsveitumál milli sveitarfélaganna eru þó ekki nýjar af nálinni. Kópavogsbær greiðir til dæmis þremur krónur meira fyrir hvert vatnstonn en Mosfellsbær og Setljarnarnes, sem einnig kaupa vatn af Orkuveitu Reykjavíkur. Árið 1997 höfðu samningar náðst um að Kópavogur greiddi sama verð og hin bæjarfélögin en því hafnaði bæjarstjórnin. Ásgeir Margeirsson, aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir Kópavogsbæ hafa álitið verðið ósanngjarnt og óskað eftir úrskurði um verðið. Það endaði með því að að úrskurðað var töluvert hærra verð, eftir yfirmat, heldur en samið hafði verið um. Vatnið hefur svo verið selt Kópavogi samkvæmt því verði síðan að sögn Ásgeirs. Aðspurður hvort ekki hafi verið óskað eftir við Orkuveituna um að verðið yrði lækkað segir Ásgeir svo ekki vera, Orkuveitunni til undrunar. Þeir séu hins vegar alveg til viðræðna um það. Að mati fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs er þetta ótrúlegt aðgerðarleysi í máli sem varðar sveitarfélagið og íbúa þess miklu. Bærinn greiðir um 12-13 milljónum meira á ári, en ef þeir nytu sömu kjara og hin sveitarfélögin og boðið var upp á fyrir átta árum. Ekki náðist í Sigurð Geirdal, bæjarstjóra Kópavogs.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira