Lífið

Skemmtir sér í Stokkhólmi

Leikarinn Denzel Washington skemmti sér mjög vel að sögn viðstaddra á skemmtistað í Stokkhólmi og sýndi fimi á dansgólfinu.  nordicphotos/getty
Leikarinn Denzel Washington skemmti sér mjög vel að sögn viðstaddra á skemmtistað í Stokkhólmi og sýndi fimi á dansgólfinu. nordicphotos/getty
Leikarinn Denzel Washington setur víst svip á skemmtanalífið í Stokkhólmi þessa dagana. Heiðraði hann vinsælan skemmtistað á Stureplan með nærveru sinni og gestir staðarins sneru sig úr hálslið þegar þeir sáu Hollywood-leikarann sýna mikla fimi á dansgólfi staðarins.

Ástæðan fyrir dvöl Washingtons í Stokkhólmi er sú að hann er að hlaða batteríin áður en hann heldur til Oslóar og verður kynnir á hinum árlegu tónleikum Nóbelsverðlaunanna ásamt leikkonunni Anne Hathaway.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.