Kallað eftir hærra áfengisverði í Bretlandi 21. febrúar 2008 10:44 MYND/Getty Images
Samtök lækna á Bretlandi hafa kallað eftir hærri sköttum á áfengi og banni við tilboðum á áfengum drykkjum til að berjast gegn óhóflegri áfengisdrykkju um helgar. Á fréttavef Sky segir að samtökin þrýsti nú á ríkisstjórnina að breyta lögum til að tryggja ábyrg verð á alkahóli. Matvöruverslunarkeðjan Tesco hefur hefur brugðist við með því að hvetja yfirvöld til að þrýsta á smásöluaðila að hækka verð, en fyrirtækið hefur grætt hundruð milljóna á tilboðsverðum á áfengi. Matvöruverslanir hafa verið gagnrýndar fyrir að selja áfengi með miklum afslætti, stundum jafnvel undir heildsöluverði. Áhyggjur eru af því að lágt áfengisverð ýti undir óhóflega drykkju sem leiði af sér glæpi og óspektir um helgar í Bretlandi. Tesco heldur því fram að ríkisstjórnin verði að koma að málinu þar sem matvöruverslunum sé meinað samkvæmt samkeppnislögum að taka sig saman um að hækka verð áfengis. Auk þess myndu neytendur fara þangað sem verðið væri lægst. Lucy Neville-Rolfe framkvæmdastjóri Tesco sagði að fyrirtækið viðurkenndi að eiga þátt í að leysa vandamál tengd óhóflegri drykkju. Eina leiðin sé að ríkisstjórnin taki á málinu. Sarah Jarvis heimilislæknir sem sinnir sjúklingum með sjúkdóma af völdum áfengisneyslu sagði Sky að hún styddi tillögur Tesco. Eitt af hverjum átta rúmum í heilbrigðisþjónustu færi undir áfengissjúklinga og 70 prósent tilfella í heilbrigðisþjónustu eftir miðnætti væru tengd áfengi. Vicqui Thomson einn lesenda fréttavefjar Sky telur þó ósanngjarnt að þeir sem neyti áfengis á ábyrgan hátt séu þvingaðir til að borga meira fyrir. Meirihluti þeirra sem neyti alkahóls séu ekki til neinna vandræða og eigi ekki að vera refsað fyrir það sem minnihlutinn geri.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Fleiri fréttir Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Sjá meira