Leifur flautar ei meir 6. október 2004 00:01
Intersportdeild karla í körfubolta hefst í kvöld en þar vantar þó einn mann sem hefur dæmt í nánast hverri umferð síðustu árin. Leifur Garðarsson körfuknattleiksdómari tilkynnti í fyrradag að hann hafi ákveðið að leggja flautuna á hilluna eftir 17 ára farsælan feril í dómgæslu en Leifur tók dómarapróf árið 1987 og varð FIBA-dómari árið 1993. Leifur tók FIBA prófið á Rimini á Ítalíu árið 1993 og til dagsins í dag hefur Leifur dæmt 37 leiki í Evrópukeppni félagsliða og farið á níu mót á vegum FIBA auk annarra ferða með íslenskum liðum. Leifur hefur dæmt 389 leiki í Úrvalsdeild og það er bara Kristinn Albertsson sem hefur dæmt meira en Kristinn á að baki 432 dæmda úrvalsdeildarleiki. Leifur hefur auk þess dæmt um 80 leiki í úrslitakeppni karla, sex bikarúrslitaleiki karla og þrjá bikarúrslitaleiki kvenna. Leifur hefur dæmt tæplega 800 leiki í öllum mótum á vegum KKÍ og með æfingamótum er þessi tala örugglega komin yfir 1000 leiki. Það er óhætt að segja að Leifur hafi verið í sérflokki í dómarastéttinni undanfarin ár en hann hefur síðustu sex árin verið kosinn besti dómari ársins af leikmönnum og þjálfurum úrvalsdeildarinnar. Leifur gerir grein fyrir ákvörðun sinni á heimasíðu Körfuknattleiksdómarafélagsins en vegna starfs síns sem skólastjóri Áslandsskóla í Hafnarfirði hefur verið erfitt fyrir hann að ferðast víða um Evrópu til dómgæslu á vegum FIBA en þar hefur helsta hvatning hans sem dómara legið. Leifur hefur unnið frábært starf í dómaramálum hér á landi því auk dómgæslunnar sat hann lengi í dómaranefnd KKÍ. Hans verður því sárt saknað úr íslenska körfuboltanum.
Íþróttir Mest lesið Frakkland - Írak | Mbappé áfram í ham? Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Fótbolti Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ Fótbolti „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Fleiri fréttir Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Anton Ingi eftir tapið: „Við höfum ekkert efni á því að fara í frí“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum „Þetta var mjög kærkomið“ Frakkland - Írak | Mbappé áfram í ham? Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Messi bætti tvö met gegn Austurríki Norðmenn undirbúa sig fyrir blautan leik í kvöld Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Messi er ekki búinn að ná Mörtu Goðsögnin fær að keppa á Wimbledon-mótinu Einum mánuði yngri en Eiður Smári Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira