Innlent

Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Fimm innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Brotist var inn i Sæmundarskóla í Grafarholti og einhverjum verðmætum stolið.

Fótspor á göngum þar benda til að tveir þjófar hafi verið á ferð. Síðan var tilkynnt um innbrot í barnafataverslun í Skeifunni, en ekki liggur fyrir hverju var stolið þar. Þjófarnir höfðu með sér rúllu af ruslapokum, líklega undir þýfið. Þá var brotist inn í gám og bíl við Smiðjuveg í Kópavogi undir morgun og inn í íbúð við Skólavörðustíg um svipað leyti, þaðan sem meðal annars var stolið fartölvu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×