Eystrasaltslandamenn þroskist 10. maí 2005 00:01
Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að engar líkur væru á því að rússnesk stjórnvöld myndu senda frá sér nýja yfirlýsingu um iðrun vegna leynisamnings Hitlers og Stalíns frá árinu 1939, sem leiddi til innlimunar Eystrasaltslandanna í Sovétríkin. Vísaði hann til samþykktar Sovétþingsins frá árinu 1989, þar sem segir að leynisamningurinn við Hitler hafi verið "persónuleg ákvörðun Stalíns" og í mótsögn við það sem Sovétríkin stóðu fyrir. Engar frekari ályktanir yrðu gerðar um þetta atriði. Pútín sagði jafnframt að stjórnvöld í Moskvu væru reiðubúin að undirrita landamærasamninga við Eistland og Lettland. En forsenda fyrir því væri að ráðamenn í þessum löndum "þroskuðust" og þeir yrðu að læra að setja ekki "heimskuleg" skilyrði fyrir slíkum samningum. Þessi hörðu orð Rússlandsforseta endurspegla spennuna sem ríkir nú í samskiptum landanna. Forseti Lettlands var eini leiðtogi Eystrasaltslandanna þriggja sem þáði boð Pútíns um að vera viðstaddur hátíðahöldin í Moskvu í tilefni af 60 ára stríðslokaafmælinu á mánudag. Forsetar Eistlands og Litháens sátu heima í mótmælaskyni við þá fullyrðingu Pútíns að Rauði herinn hafi "frelsað" lönd þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira