Gleðileikarnir í Borgarnesi hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla Atli Ísleifsson skrifar 21. maí 2015 13:34 Verðlaunahafar vIð Safnahúsið við Hverfisgötu í gær. Mynd/Heimili og skóli
Gleðileikarnir í Borgarnesi hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla sem afhent voru í gær. Verðlaunin voru afhent í tuttugasta sinn við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Hvatningarverðlaun 2015 hljóta nemendur og foreldrar Austurbæjarskóla fyrir Spennistöðina og Sigríður Björk Einarsdóttir hlaut viðurkenning fyrir að vera dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2015. Anna Margrét Sigurðardóttir, formaður Heimilis og skóla, afhenti verðlaunin ásamt Gísla H. Guðlaugssyni, formanni dómnefndar. Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, forfallaðist því miður en aðstoðarmaður hans, Sigríður Hallgrímsdóttir, flutti ávarp fyrir hans hönd. Í fréttatilkynningu frá Heimili og skóla segir: „Gleðileikarnir í Borgarnesi hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2015.Gleðileikarnir eru þrautaleikur þar sem nemendum á elsta stigi Grunnskóla Borgarness er skipt niður í hópa sem þurfa að leysa krefjandi verkefni sem ekki eru hluti af þeirra daglega skólalífi. Sjálfstæði og samvinna eru einkunnarorð leikanna og miðast að því að efla samheldni og samstöðu í samfélaginu sem og að gefa þátttakendum tækifæri til þess að spreyta sig á skemmtilegum þrautum. Allir þátttakendur fara heim af leikunum með jákvæð og falleg skilaboð í farteskinu og nýja sýn á eigin styrk og getu. Verkefnið er vel heppnað og vekur athygli í samfélaginu, eflir samstarf heimilis og skóla og virkjar foreldra í starfi með nemendum og fær þá til þess að kynnast innbyrðis og öðrum nemendum skólans.Hvatningarverðlaun 2015 hljóta nemendur og foreldrar Austurbæjarskóla fyrir Spennistöðina.Um er að ræða menningar- og félagsmiðstöð við Austurbæjarskóla, hugmyndin kom frá nemendum og foreldrum að nýta húsnæði á lóð Austurbæjarskóla og hafa þar fjölnota hús. Nú tæpum tveimur árum seinna er hugmyndin orðin að veruleika og er húsnæðið nýtt undir kennslu fyrripart dags og félagsmiðstöð seinnipartinn og á kvöldin. Aðra tíma er húsnæðið laust til notkunar fyrir íbúa og félagasamtök til þess að efla menningarstarfsemi í miðborg Reykjavíkur.Sigríður Björk Einarsdóttir dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2015. Sigríður Björk er formaður foreldrafélags Hólabrekkuskóla í Breiðholti og hefur sinnt því embætti síðustu fjögur skólaár með miklum sóma. Hún hefur m.a. unnið að því að efla samstarf foreldra innan skólans og stuðlað að samstarfsverkefnum nemenda á öllum skólastigum. Einnig hefur hún beitt sér fyrir bættu námsumhverfi barna með sérþarfir. „Það má ljóst vera að Sigríður Björk Einarsdóttir, er dugnaðarforkur. Hennar nálgun á skólastarfi einkennist af brennandi áhuga, dugnaði og eljusemi og hefur hún einstakt lag á því að fá fólk með sér til starfa og skapa jákvætt viðhorf til skólans“ segir í tilnefningu. Í ár bárust 35 gildar tilnefningar til verðlaunanna. Dómnefnd 2015 var skipuð eftirfarandi aðilum:Gísli H. Guðlaugsson, formaður dómnefndar, Heimili og skólaRagnheiður Bóasdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneytiGuðfinna Ármannsdóttir, formaður foreldraráðs Menntaskólans við SundSveinbjörn Kristjánsson, Embætti landlæknisÞóroddur Helgason, fræðslustjóri í FjarðabyggðSteinunn Ármannsdóttir, skóla- og frístundasvið ReykjavíkurborgarAðalheiður Steingrímsdóttir, Kennarasamband Íslands.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira