Ganga þvert yfir jökul í minningu látins drengs Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. maí 2015 18:30
Sjúkraflutningamennirnir Arnar Páll Gíslason og Sigurður Bjarni Sveinsson ætla að ganga þvert yfir Mýrdalsjökul á gönguskíðum á morgun til að safna fé fyrir fjölskyldu Guðsteins Harðarsonar, tveggja ára drengs sem lést í hörmulegu slysi í Meðallandi í apríl. Guðsteinn Harðarson fæddist 14. desember 2012 og var til heimilis á bænum Efri-Ey 1 í Meðallandi. Hann lést í hörmulegu slysi á bænum hinn 6. apríl síðastliðinn þegar hann féll út um dyraop dráttarvélar og lenti undir malarvagni sem var aftan í dráttarvélinni. Hann var aðeins 27 mánaða. Arnar Páll Gíslason sem er frændi Guðsteins og Sigurður Bjarni Sveinsson samstarfsmaður hans ætla að ganga þvert yfir Mýrdalsjökul í einum rykk á morgun til að safna fé fyrir fjölskyldu drengsins. Þeim til halds og trausts í gegnum fjarskiptabúnað verður Ragna Björg Ársælsdóttir. Slysið var ekki bara erfitt fyrir fjölskyldu Guðsteins. „Það eru meira og minna allir lamaðir af sorg. Það taka þetta allir mjög inn á sig en flestir sem búa í sveitinni í kring eru bændur enda mjög margir bændur í Vestur-Skaftafellssýslu,“ segir Ragna Björg. Arnar Páll segir að gangan sé ekki aðeins til þess að safna fé fyrir fjölskylduna heldur einnig til þess að halda minningu drengsins á lofti. „Tilhneigingin virðist vera sú, þegar svona ljót slys gerast og hræðilegir atburðir, að við reynum að gleyma þeim og reyna að komast yfir þá þannig. Ég hugsa að það sé jafnvel betra að vinna úr þessum málum á þennan hátt og halda minningu drengsins á lofti, reyna að bæta þeirra líðan (fjölskyldunnar) og koma í veg fyrir svona í framtíðinni,“ segir Arnar Páll. Með því að slá inn leitarorðið Guðsteinsgangan á Facebook má finna síðu leiðangursins en þar eru líka upplýsingar um styrktarreikning.
Tengdar fréttir Tveggja ára drengur lést á sveitabæ í Vestur-Skaftafellssýslu Drengurinn féll út um dyraop dráttarvélar og lenti undir malarvagni sem hún dró. 6. apríl 2015 22:15 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Tveggja ára drengur lést á sveitabæ í Vestur-Skaftafellssýslu Drengurinn féll út um dyraop dráttarvélar og lenti undir malarvagni sem hún dró. 6. apríl 2015 22:15