Rafmagn til húshitunar hækkar 7. janúar 2005 00:01
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rafmagnsveitna ríkisins, segir verðhækkanir á rafmagni til húshitunar verði á bilinu 15-20 prósent, vegna breytinga á lögum um raforkusölu. Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar segir þessa hækkun koma sem rýtingsstungu í bakið á þeim sem búa við þennan upphitunarkost. Í umræðunni um breytt raforkulög hafi verið áætlaðar 230 milljónir í niðurgreiðslu vegna þessa og alltaf hafi verið talað um ef það dygði ekki til, yrði bætt úr því. "Valgerður Sverrisdóttir og ríkisstjórnin verður að gjöra svo vel og koma með meiri pening. Það segir sig sjálft þegar 230 milljónir duga ekki fyrir þessari hækkun á dreifbýlisupphitun." Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks og formaður iðnaðarnefndar segir iðnaðarnefnd muni skoða málið. Reynsla í nýskipuðu umhverfi raforkumála eigi eftir að koma í ljós og gjaldskrá orkufyrirtækjanna sé að birtast þessa dagana. "Í framhaldi munum við meðal annars athuga stöðu þeirra rafnotenda sem þarna um ræðir. Við fjárlagagerðina núna í haust var gengið út frá því að þessar 230 milljónir myndu að öllum líkindum leiða til þess að þessir notendur yrðu jafnsettir og áður. Nú er greinilega komið í ljós að þessir fjármunir eru ekki nægir. Það er á hreinu að iðnaðarnefnd á eftir að vinna mikið í þessari löggjöf á þessu ári og í framtíðinni." Meðalhækkun raforkuverðs RARIK í dreifbýli verður tæp átta prósent, en engin í þéttbýli. Helstu ástæður þessa hækkana er að ekki má lengur selja rafmagn á mismunandi verði eftir því til hvers rafmagnið er notað. Þá felldi Landsvirkjun niður 34 aura verðafslátt nú um áramót, sem kemur til með að hækka rafmagnsverð allra. Kristján Haraldsson, forstjóri Orkubús Vestfjarða segir að breytingar á verðtöxtum verði kynntar í næstu viku, en hjá þeim sem einnig kaupa almennt rafmagn verði nánast engin hækkun á raforkuverði. Tekjur fyrirtækisins munu ekki hækka vegna orkusölu, heldur mun nýtt verð endurspegla tilfærslur á milli taxta.
Fréttir Innlent Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Sjá meira