Skilyrðum til blaðamennsku hrakar á Íslandi Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2015 09:16 Hjálmar Jónsson er formaður BÍ. Skilyrði til frjálsrar blaðamennsku eru ömurleg á Íslandi sé litið til stöðu mála annars staðar á Norðurlöndum. visir/Anton Brink
Á lista yfir sjálfstæði og frelsi fjölmiðlunar hrapar Ísland á lista úr 8. í 21. sæti. Blaðamenn án landamæra gefa reglulega út lista en þar er lagt mat á skilyrði til blaðamennsku að teknu tilliti til ástands í landi hverju, þá einkum að teknu tilliti til tjáningarfrelsis. Ýmsir þættir geta haft þar áhrif á. Blaðamenn án landamæra gefa reglulega út lista en þar er lagt mat á skilyrði til blaðamennsku að teknu tilliti til ástands í landi hverju, þá einkum að teknu tilliti til tjáningarfrelsis. Ýmsir þættir geta haft þar áhrif á. Í fyrra var Ísland í 8. sæti en hrapar nú niður í það 21 og er ástandið talið ívið betra hér á landi en í Afríkuríkinu Ghana. Í skýrslu sem fylgir kemur fram að Ísland er meðal þeirra landa hvar hrun niður lista er með mestum ósköpum og er talað um að ástæðan sé snarversnandi samskipti fjölmiðla og stjórnmálamanna. Samtökin telja fulla ástæðu til að hafa af þessu áhyggjur að teknu tilliti til þróunar lýðræðis í Vestur-Evrópu allri. Ítalía er einnig meðal þeirra landa þar sem ástandið hefur hríðversnað, og er í því sambandi bent á að blaðamenn megi sæta hótunum frá mafíunni. Miðað við hin Norðurlöndin er staða Íslands sérstakt áhyggjuefni. Finnar eru efstir á lista, búa við kjöraðstæður. Þar næst kemur Noregur, Danmörk, Holland og Svíþjóð.Versnandi samskipti við stjórnvöld ættu að hækka okkur á lista(Uppfært 11:10) Vísir leitaði viðbragða Hjálmars Jónssonar, formanns Blaðamannafélags Íslands, á þessu mati Blaðamanna án landamæra og hann telur reyndar að ekki hafi orðið grundvallarbreytingar á aðstæðum fjölmiðla og vinnuaðstæðum blaðamanna á síðustu misserum. „Sé ekki hver rökin ættu að vera fyrir því raunar. Samkeppni er mjög hörð á fjölmiðlamarkaði hér á landi og fer harðnandi og mjög mikið af hæfum blaðamönnum sinnir starfi sínu af mikilli samviskusemi þrátt fyrir léleg kjör. Við sjáum enda árangurinn ótvírætt á síðustu mánuðum,“ segir Hjálmar. Formaðurinn segist ekki vita mikið um þessi samtök né heldur á hverju þau grundvalla mat sitt: „Þau hafa alla vega ekki kallað eftir upplýsingum frá Blaðamannafélagi Íslands. Sýnist raunar á listunum sem birtir eru á heimasíðu samtakanna að við höfum verið í efsta sæti fyrir fáum árum síðan með mest fjölmiðlafrelsi í heiminum. Það segir kannski sína sögu. Sýnist líka að versnandi staða okkar sé rekin til versnandi samskipta blaðamanna og stjórnmálamanna. Hvenær hafa þeir sem sinna þessum störfum verið í sama liði? Þvert á móti er það auðvitað eitt af meginhlutverkum blaðamanna að veita stjórnmálalífinu aðhald, sum sé almannavaldinu. Það er ekki nýtt að stjórnmálamenn kveinki sér undan aðhaldinu og við sjáum á liðnum mánuðum að aðhaldið skilaði árangri, t.a.m. í lekamálinu. Versnandi samskipti fjölmiðla og stjórnmálalífsins, ef það er raunin, ættu því að hækka okkur á listanum frekar en að lækka okkur, hefði ég haldið.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira