Bjóða níu ára börnum hraðbankakort Atli Ísleifsson skrifar 12. febrúar 2015 18:09 Helgi Teitur Helgason, framkvæmdarstjóri einstaklingsviðskipta hjá Landsbankanum. Vísir/Stefán „
Ég skil alveg viðbrögð pabbans. Þetta kemur væntanlega til vegna þess að sonur hans er að færast á milli klúbba hjá okkur. Hann er að fara upp í Klassann og ég reikna með að því að í þessu bréfi hafi verið rætt um möguleika sonar mannsins að fá hraðbankakort,“ segir Helgi Teitur Helgason, framkvæmdarstjóri einstaklingsviðskipta hjá Landsbankanum, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Þættinum hafði borist bréf frá föður sem sagði að Landsbankinn hefði sent níu ára syni sínum bréf þar sem syninum hafi verið bent á að hann hafi nú náð þeim aldri að hann gæti fengið greiðslukort. Föðurnum þótti þetta mikil svívirða að senda stráknum slíkt bréf og reyna að fá hann í viðskipti. Helgi Teitur að ekki sé um kreditkort að ræða, vera án endurgjalds og að engin væru færslugjöldin. „En það má alltaf spyrja hvort níu ára aldur sé réttur fyrir þetta. Þetta er svolítið mismunandi milli krakka hvernig þetta er, en möguleikinn opnast fyrir krakka sem eru á aldrinum níu til tólf ára. En það er algerlega foreldrunum háð.“ Bréfið sem barst frá bankanum var stílað á móður drengsins og drenginn sjálfan. „Það má velta því fyrir sér hvort það sé rétt að hafa drenginn þar með. Það vekur kannski áhuga hans á þessu, en þetta er undir foreldrunum komið.“ Helgi Teitur segir að einhverjir krakkar á þessum aldri hafi þörf fyrir að nálgast reiðufé í hraðbanka. „Það er kannski verið að benda fólki á þann möguleika frekar en að að vera með beina markaðsherferð gagnvart börnum eins og þetta hljómaði hjá þér í upphafi.“ Hlusta má á viðtalið við Helga Teit í spilaranum að ofan.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira