Ólafur ein af stjörnum Ólympíulistahátíðar í London 10. desember 2010 10:00 Ólafur Elíasson er í mögnuðum hópi sem á að bera uppi listahátíð London árið 2012. „
Þegar menn eru búnir að reisa fossa í New York og byggja sól er þetta kannski rökrétt framhald,“ segir Börkur Arnarson hjá listgalleríinu i8, einn nánasti samstarfsmaður Ólafs Elíassonar hér á landi. Íslenski listamaðurinn verður ein af stjörnum Listahátíðar í London árið 2012 sem haldin verður í tengslum við Ólympíuleikana þar. Í kynningu á listahátíðinni segir að fremstu listamenn heims hafi verið valdir til að taka þátt í þessum einstaka viðburði. Meðal þeirra eru leikkonan Cate Blanchett, rithöfundurinn Toni Morrison, leikstjórinn Mike Leigh og stórstjörnurnar Damon Albarn og Jude Law. Ólafur verður aðalnúmerið í listhlutanum en Börkur sagðist ekki vita hvert hans hlutverk væri. „Ég held alveg örugglega að þetta eigi að koma fólki á óvart og menn vilji ekki ræða um það í smáatriðum.“ Fram kemur í fréttatilkynningu að Ólafur sé að vinna sérstakt verk fyrir hátíðina ásamt listakonunni Rachel Whiteread og að það verði til sýnis. Börkur segir það ekki koma sér á óvart að Bretarnir skuli hafa falast eftir kröftum Ólafs. Listamaðurinn sé í fremstu röð í nútímalist en veðursýning hans í Tate Modern var valin einn af menningarviðburðum fyrsta áratugar þessarar aldar í breska blaðinu The Telegraph. Boris Johnson, borgarstjóri London, fór enda fögrum orðum um hópinn sem Ólafur tilheyrir í fréttatilkynningunni. „Listamennirnir eru af þeirri stærðargráðu að öllum ætti að vera það ljóst að árið 2012 verður eitt af eftirminnilegri árum í sögu London.“ Undir það tók Sebastian Coe, formaður Ólympíunefndarinnar í London. „Sumarið 2012 verður töfrum líkast og þessi Listahátíð á eftir að leika stórt hlutverk í að gera Ólympíuleikana að stærstu sýningu heims.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira