Neytendasamtökin vara við svikum á leigumarkaði Kjartan Atli Kjartansson skrifar 29. ágúst 2014 10:36 Neytendasamtökin vara við svikum á leigumarkaði.
Á vef Neytendasamtakanna má sjá ítarlegar ráðleggingar hvernig leigjendur eigi að komast hjá því að vera sviknir á leigumarkaðinum. Þar er fólki, sem hyggst leigja íbúið, ráðlagt að ganga í fyrstu úr skugga um að sá sem það stundar viðskipti eigi íbúðina í raun. „Borið hefur á því að aðilar þykjast hreinlega eiga íbúðir og auglýsi þær sem sínar, án þess að eiga nokkuð tilkall til þeirra,“ segir í umfjöllun samtakanna.Er íbúðin í raun til? Í umfjölluninni eru leigjendur hvattir til þess að leigja ekki íbúðir sem þeir hafi ekki séð sjálfir. Færst hafi í aukana að fólk leigi íbúðir í gegnum netið og láti það eingöngu duga að skoða myndir af íbúðinni. „Í mörgum tilvika eru leigjendum sendar ljósmyndir af íbúðum áður en þeir greiða leigugreiðslur til leigusala. Þessar ljósmyndir geta oftar en ekki komið upp um svik þar sem þær eru stundum þess eðlis að engar líkur séu á að umrædd íbúð sé á Íslandi. Þetta má til dæmis leiða af hönnun íbúðarinnar og e.t.v. staðsetningu hennar miðað við ljósmyndir þar sem sést út um glugga o.fl. Það er einnig mikilvægt að fá alltaf nákvæmt heimilisfang íbúðarinnar og geta þannig athugað hvort íbúðin sé yfir höfuð til og í íbúðarhæfu ástandi. Borið hefur á því að leigjendur hafi verið að greiða leigu fyrir íbúðir sem eru enn á byggingarstigi og í sumum tilvikum hefur einungis byggingargrunnur verið til staðar.“Auglýsingar sem eru of góðar Í umfjöllun samtakanna er einnig fjallað um auglýsingar sem séu of góðar til að vera sannar. „Ef auglýst er t.d. 130 fermetra íbúð á 100.000 kr., þá er líklegt að auglýsingin sé einfaldlega of góð til að vera sönn.“ Einnig er fjallað um erlendan mann sem sendi frá sér falskar auglýsingar:„Í einu tilviki hafði erlendur maður auglýst íbúð með þeim hætti og sagðist vera orðinn of aldraður til þess að geta hagnýtt sér íbúð sína á Íslandi. Þess vegna þyrfti hann að leigja hana og vildi hann ekki leigja hana of hátt í von um að fá góða leigjendur. Þegar málið var skoðað betur kom í ljós að umræddur aðili var svikari og hafi hann auglýst sömu íbúðina á ótal vefsíðum víðsvegar um heiminn. Þannig hafði hann einungis breytt ,,Íslandi“ í eitthvað annað land eftir hentisemi hverju sinni. Ljósmyndir af íbúðinni gáfu einnig tilefni til þess að efast um sannleiksgildi auglýsingarinnar.“Samtökin hvetja leigjendur einnig til þess að slá ákveðnum setningum úr auglýsingum inn í leitarvélar.„Oft er hægt að athuga hvort um svik sé að ræða með því að taka heilar setningar og setja þær í leitarvélar á netinu. Þeir sem stunda svik með þessum hætti eru nefnilega yfirleitt með fleiri járn í eldinum en bara eitt og nota sömu auglýsingarnar oft og mörgum sinnum. Á veraldarvefnum eru ótal mörg svæði þar sem leigjendur, sem hafa verið sviknir, vara við slíkum aðilum og birta þar bréf eða auglýsingar í heild sinni – öðrum sem víti til varnaðar.“
Mest lesið Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Erlent Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Veður Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Fleiri fréttir Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Sjá meira