Guaita hetja Palace er liðið náði í stig gegn Totten­ham

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Vicente Guaita var frábær í dag.
Vicente Guaita var frábær í dag. Glyn Kirk/Getty Images

Crystal Palace og Tottenham Hotspur gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Vicente Guaita, markvörður Palace, reyndist hetja leiksins.

Guaita hafði varið vel í þrígang er Harry Kane kom Tottenham yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Má setja spurningamerki við markvörðinn þar sen skot Kane flökti á leiðinni sem virtist trufla Guaita í marki heimamanna.

Staðan var 0-1 í hálfleik en þegar tók að líða á síðari hálfleikinn tók Palace völdin. Eftir hverja sóknina á fætur annarri þá jafnaði Jeffrey Schlupp metin eftir að Hugo Lloris hafði varið aukaspyrnu Eberechi Eze á 81. mínútu.

Harry Kane hélt hann hefði komið gestunum yfir á nýjan leik með skalla af stuttu færi en Guaita varði vel. Markvörðurinn var svo aftur á ferðinni þegar hann blakaði frábærri aukaspyrnu Eric Dier í slá undir lok leiks. Lokatölur 1-1 í hörku leik á Selhurst Park.

Tottenham heldur toppsætinu – allavega þangað til Liverpool lýkur leik sínum í dag – á meðan Crystal Palace er í 11. sæti deildarinnar.

Í fyrsta leik dagsins vann Southampton 3-0 sigur á Sheffield United. Mörkin skoruðu þeir Che Adams, Stuart Armstrong og Nathan Redmond. Southampton er 3. sæti með 23 stig en Sheffield á botni deildarinnar með aðeins eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira