Fótbolti

1 dagur í Ungverjaleik: Þegar Ungverjar áttu besta landslið heims

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ungverjar og Englendingar ganga inn á Wembley fyrir „Leik aldarinnar“. Fremstur í flokki Ungverja er Ferenc Puskás sem skoraði 84 mörk í 85 leikjum fyrir ungverska landsliðið.
Ungverjar og Englendingar ganga inn á Wembley fyrir „Leik aldarinnar“. Fremstur í flokki Ungverja er Ferenc Puskás sem skoraði 84 mörk í 85 leikjum fyrir ungverska landsliðið. getty/S&G

Á morgun er komið að úrslitastund þegar íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir því ungverska í umspili um sæti á EM. Leikurinn fer fram á Ferenc Puskás leikvanginum í Búdapest. Í síðasta upphitunarpistlinum fyrir leikinn mikilvægum förum við aftur í tímann og rifjum upp þegar Ungverjar áttu besta landslið heims á fyrri hluta 6. áratugar síðustu aldar.

Frá júní 1950 til júní 1956 lék Ungverjaland 50 landsleiki, vann 42, gerði sjö jafntefli og tapaði aðeins einum. Því miður fyrir Ungverja kom þetta eina tap í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Sviss.

Þetta gullið Ungverja, Aranycsapat eins og það kallaðist á ungversku, varð m.a. Ólympíumeistari, fyrsta liðið utan Bretlandseyja til að vinna Englendinga á þeirra heimavelli, rústaði sama liði á sínum heimavelli, sló í gegn á HM 1954 og varð fyrsta liðið til að vinna Sovétríkin á þeirra heimavelli.

Sándor Kocsis skorar eitt 75 marka sinna fyrir ungverska landsliðið. Þau komu í aðeins 68 landsleikjum.getty/ullstein bild

Nær allir leikmenn gulliðs Ungverja léku með Honvéd sem var jafnframt lið ungverska hersins. Helstu hetjur Honvéd og ungverska landsliðsins voru Ferenc Puskás, Sándor Kocsis, Zoltán Czibor, József Bozsik, Gyula Grosics og Nándor Hidegkuti.

Ungverjar urðu Ólympíumeistarar eftir 2-0 sigur á Júgóslavíu 1952. Ef þeir voru ekki komnir almennilega á kortið þá voru þeir svo sannarlega komnir þangað eftir frægan sigur á Englandi á Wembley, 3-6, í nóvember 1953. Fyrir leikinn höfðu Englendingar aldrei tapað fyrir þjóð utan Bretlandseyja á heimavelli og lifðu enn í þeirri blekkingu að þeir væru besta fótboltalið heims.

Ungverjar skutu Englendinga harkalega niður á jörðina á þeirra eigin heimavelli. Ungverjaland náði forystunni strax á upphafsmínútu leiksins og var komið í 1-4 eftir tæpan hálftíma. Enska liðið réði ekkert við það ungverska sem stóð því framar hvað tækni, þrek og leikskipulag varðar.

Liðin mættust aftur á Nepstadion í Búdapest, sem stóð þar sem Ferenc Puskás völlurinn stendur núna, í maí 1954, þremur vikum áður en HM í Sviss hófst. Englendingar vildu koma fram hefndum en fengu enn verri rassskellingu en á Wembley. Ungverjar unnu 7-1 sigur en þetta er stærsta tap Englendinga frá upphafi.

Ungverjar þóttu langlíklegastir til afreka á HM og framan af gekk allt vel. Í raun var allt í himnalagi þar til á 10. mínútu í úrslitaleiknum gegn Vestur-Þjóðverjum.

Ungverjar skoruðu 25 mörk í fjórum leikjum á leið sinni í úrslitaleikinn, þar af komu átta í stórsigri á varaliði Vestur-Þjóðverja, 8-3, í riðlakeppninni. Ungverjaland þótti því eðlilega mun sigurstranglegra í úrslitaleiknum í Bern 4. júlí 1954. Og Ungverjar gátu ekki beðið um betri byrjun því eftir átta mínútur voru þeir komnir í 2-0 með mörkum frá Czibor og Puskás.

Vestur-Þjóðverjar gáfust ekki upp, jöfnuðu með tveimur mörkum á 10. og 18. mínútu og þegar sex mínútur voru til leiksloka skoraði Helmut Rahn markið sem tryggði Vestur-Þýskalandi fyrsta heimsmeistaratitil sinn. Ungverska ofurliðið var loks sigrað og ekki að ástæðulausu sem leikurinn er oft kallaður „Kraftaverkið í Bern“.

Svanasöngur gullliðs Ungverja var sigurinn á Sovétmönnum, 1-0, í Moskvu í september 1956. Eftir ungversku byltinguna síðar sama ár leystist gullliðið upp og síðan þá hafa Ungverjar aldrei eignast viðlíka landslið. 

Þeir áttu reyndar mjög gott lið á 7. áratugnum með Florian Albert í broddi fylkingar og komust svo á þrjú heimsmeistaramót í röð (1978, 1982, 1986). En frá 1986 hefur Ungverjaland aðeins komist á eitt stórmót og vonandi verður tölfræðin sú sama eftir leikinn í Búdapest annað kvöld.

Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×