Lífið

Allt úr engu: Rauðkál, grillað grænkál og fleiri vegan réttir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá þættinum Allt úr engu.
Frá þættinum Allt úr engu. Samsett mynd

Í þáttunum Allt úr engu fjallar matreiðslumaðurinn Davíð Örn Hákonarson um allt sem tengist mat og hvernig við getum nýtt hráefnið sem best og spornað við matarsóun í framhaldinu.

Í þættinum í gær heimsótti hann íþróttakonuna Söru Sigmundsdóttur. Þar var áherslan á grænmetisrétti og uppskriftirnar má finna hér fyrir neðan.

Saltaður súraldin og sítróna

  • Fínt salt 
  • Gróft salt
  • Sítrónur og / eða súraldin

Skerið örlítið af endunum af sítrusávöxtunum og skerið krossa í endana, 1 cm djúpa.

Setjið fínt salt í skál og nuddið skornu endunum í fína saltið svo það nái að komast vel inn í sárið báðu megin. Þegar þið eruð búin að því komið þið ávöxtunum fyrir í krukku með loki og hellið grófu salt yfir svo það hylji ávöxtinn allan. Geymið í kæli fyrstu 2 vikurnar og svo úti við stofuhita í 1 ½ mánuð fyrir notkun.

Mynd/Allt úr engu

Skessujurtarpestó

  • 2 dl. Ólífuolía 
  • 4 msk – ristaðar furuhnetur
  • Handfylli skessujurt 
  • Handfylli grænkál eða önnur græn lauf
  • ½ hvítlauksgeiri - skrældur 
  • ¼ rauðlaukur
  • Handfylli laukkarsi ef hann er til – ekki nauðsynlegt en alltaf skemmtilegt að hafa með
  • Salt eftir smekk

Setjið allt saman í lender og blandið þangað til þetta er orðið maukað saman og orðinn fallegur massi. Hægt er að bragða til með meira salti og/eða skessujurt eftir smekk.

Kartöflumauk hrært með avocado 

- fyrir 6-8

  • 5 Bökunarkartöflur – bakaðar í forhituðum ofni á 190°c í klukkutíma, eða þar til þær eru mjúkar inn í 
  • 2 stk avocado – maukað í blender eða með töfrasprota
  • ¼ Söltuð sítróna – börkurinn saxaður fínt niður. 
  • Safi frá 1 sítrónu
  • Möndlumjólk, kókosmjólk eða sojamjólk til að þynna maukið 
  • Salt

Afhýðið kartöflurnar og setjið þær í pott og maukið með písk þar til þær eru orðnar maukaðar. Bætið avókadómaukinu út í ásamt söxuðu sítrónunni og sítrónusafa . Hrærið vel saman og kryddið með salti og meira af sítrónusafa ef þess þarf. Þynnið með mjólk ef maukið er of þykkt. Maukið á að vera flauelsmjúkt.

Mynd/Allt úr engu

Grillað toppkál 

– fyrir 6-8

  • 1 stk toppkál 
  • Timían
  • Salt 
  • Eplaedik

Skerið toppkálið í 6 báta og komið því fyrir á fati, helli yfir smá ólífuolíu og kryddið með salti, söxuðu timían eftir smekk og smá eplaediki.

Forhitið grillið upp í 250 – 300 gráður á hæsta hita og skellið svo kálinu á. Hafið það á grillinu í 15 – 20 mínútur á háum hita og snúið því reglulega á meðan. Það á að vera smá bit í kálinu og það örlítið brennt að utan.

Grillað grænkál

  • 1 poki grænkál 
  • Olía
  • Salt 
  • Edik

Rífið grænkálið af stönglinum og setjið það í kalt vatn og látið liggja í 10 mínútur. Takið það svo upp úr vatninu og þerrið það vel og kryddið með salti og smá olíu. Forhitiði grillið á hæsta hita í 10 mínútur og setjið grænkálið á grillið. Það á að brenna örlítið og verða dökkgrænt á litinn, gott er að snúa því einu sinni eða tvisvar. Takið það síðan af grillinu og bragðið til með salti og olíu ef ykkur finnst það þurfa.

Mynd/Allt úr engu

Rauðkálið 

Fyrir 4-6

  • Hálfur haus rauðkál – skorið í fína strimla 
  • ½ líter Epladjús
  • 6 stk kardimommur 
  • 1 stk kanill
  • 200 acacia honey 
  • 300 gr. Eplaedik
  • 1 stk grænt epli – skorið í 4 bita 
  • Smá timian
  • ½ saltaður súraldin – börkurinn saxaður fínt 
  • 5 skífur þurrkuð epli – saxað fínt í strimla
  • 4 blöð skessujurt – söxuð fínt 
  • 3 tsk. Sultaður rauðlaukur ef hann er til

Setjið epladjúsinn, kardimommur, kanil, hunang, eplaedik, epli og timian í pott og náið upp suðu á vökvanum. Setjið rauðkálið út í og haldið áfram að sjóða þar til kálið er orðið hálf eldað. Sigtið vökvann frá kálinu, geymið kálið til hliðar og setjið vökvann aftur í pottinn. Haldið nú áfram að sjóða vökvann niður um 2/3 eða þangað til hann er orðinn súrsætur og byrjaður

Gott er að stilla bragðið af með hunangi og ediki ef þess þarf áður en borið er fram. Rauðkálið er gott bæði heitt og kalt.


Tengdar fréttir

Allt úr engu: Rauðspretta, gulrætur og rósir

Í þáttunum Allt úr engu fjallar matreiðslumaðurinn Davíð Örn Hákonarson um allt sem tengist mat og hvernig við getum nýtt hráefnið sem best og spornað við matarsóun í framhaldinu. Hann heimsækir áhugavert fólk og eldar með því frábærar máltíðir með því að nýta það sem er til á heimilinu.

Allt úr engu: Risarækjur, súrar gúrkur og hvítt súkkulaði

Í þáttunum Allt úr engu fjallar matreiðslumaðurinn Davíð Örn Hákonarson um allt sem tengist mat og hvernig við getum nýtt hráefnið sem best og spornað við matarsóun í framhaldinu. Hann heimsækir áhugavert fólk og eldar með því frábærar máltíðir með því að nýta það sem er til á heimilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×