Arsenal í undanúrslit eftir dramatík

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dani Ceballos fagnar sigurmarkinu.
Dani Ceballos fagnar sigurmarkinu. vísir/getty

Arsenal er komið í undanúrslit enska bikarins eftir 2-1 sigur á Sheffield United en tvö mörk voru dæmd af Sheffield United eftir skoðun VAR.

Sheffield United virtist vera ná forystunni á níundu mínútu. John Lundstram kom boltanum í netið eftir hornspyrnu en eftir skoðun í VAR-sjánni var hann dæmdur rangstæður.

Stundarfjórðungi síðar fékk svo vítaspyrnu á 24. mínútu. Alexandre Lacazette féll eftir baráttu við Chris Basham og dæmd var vítaspyrna. Nicolas Pépé steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Þeir leiddu 1-0 í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks var annað mark dæmt af Sheffield United. John Egan skallaði boltann í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Heimamenn jöfnuðu metin þremur mínútum fyrir leikslok og það mark var dæmt gott og gilt. Eftir langt innkast og darraðadans barst boltinn til David McGoldrick og hann skilaði boltanum í netið.

Dramatíkinni var ekki lokiðen sigurmarkið skoraði Dani Ceballos á 91. mínútu. Eftir góða sókn fékk Spánverjinn boltann, lék á varnarmann og skoraði framhjá Dean Henderson sem var í ágætis skógarúthlaupi. Lokatölur 2-1.

Man. United tryggði sér sæti í undanúrslitunum með sigri á Norwich í gær en síðar í dag fara fram leikir Leicester og Chelsea annars vegar og Newcastle og Man. City hins vegar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira