Innlent

Enn í varðhaldi grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Konan fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun apríl.
Konan fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun apríl. Vísir/Vilhelm

Karlmaður um þrítugt sem grunaður er um að hafa orðið móður sinni að bana í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun apríl sætir áfram gæsluvarðhaldi til 12. júní næstkomandi.

Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi en gæsluvarðhald yfir manninum rann út fyrir viku síðan.

Margeir segir að rannsókn málsins miði vel en beðið sé eftir niðurstöðu ýmissa rannsókna áður en málið verði sent til ákærusviðs.

Lögreglan var kölluð út að íbúðarhúsi í Hafnarfirði um klukkan hálftvö aðfaranótt 6. apríl. Kona á sextugsaldri fannst látin í húsinu og voru tveir menn, annar um þrítugt og hinn á sextugsaldri, handteknir.

Eldri maðurinn var látinn laus en sá yngri, sonur konunnar, úrskurðaður í gæsluvarðhald. Banamein móður hans er talið vera hnífstunga.

Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í apríl að hinn grunaði eigi við geð- og fíknivanda að stríða. Hann hafði búið hjá móður sinni og stjúpföður um tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×