Öskureiði flugþjónninn hvatti farþega til slagsmála Anton Egilsson skrifar 22. apríl 2017 18:29 Flugþjóninum var heitt í hamsi. Skjáskot
Myndband af reiðiskasti flugþjóns hjá bandaríska flugfélaginu American Airlines hefur farið eins og eldur í sinu um netheima í dag en í myndbandinu sést flugþjónninn meðal annars hvetja einn farþega til að slá sig. Tildrög málsins voru þau að upp komu átök vegna barnavagns sem kona sem var farþegi í vélinni hafði meðferðis en hún var að ferðast með tveimur börnum sínum. Tók flugþjónninn sig til og hrifsaði barnvagninn af henni. Fór það ekki betur en svo að vagninn slóst í konuna með þeim afleiðingum að hún missti næstum því annað barn sitt úr höndunum. Mikil reiði braust út í vélinni en í myndbandinu má sjá konuna standa hágrátandi með börn sín á meðan að farþegar hella sér yfir flugþjóninn. Einn þeirra sagði þá við flugþjóninn að ef hann hefði gert þetta við hann þá hefði hann kýlt hann kaldann. Æstist flugþjónninn þá mikið upp og manaði hann til þess að koma og standa við stóru orðin. Eftir smá orðaskak róaðist farþeginn þó niður og settist aftur í sæti sitt. Greint var frá því á Vísi fyrr í dag að flugfélagið hefði sagt flugþjóninum upp störfum í kjölfar málsins. Þá hefur flugfélagið jafnframt sent frá sér formlega afsökunarbeiðni til konunnar. „Við erum miður okkar vegna þeirra þjáninga sem farþegi okkar og fjölskylda hennar varð fyrir,” segir í yfirlýsingu frá American Airlines. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Tengdar fréttir Flugvélin yfirbókuð og læknirinn sturlaðist Nokkuð sérstakt atvik átti sér stað í flugvél United Airlines frá Chicago til Louisville í gær. 10. apríl 2017 11:30 Starfsmanni American Airlines vikið úr starfi vegna barnavagns Farþegi, sem náði eftirköstum atviksins á myndband, sagði að starfsmaður American Airlines hefði hrifsað barnavagninn með offorsi úr höndum móður, sem var einnig farþegi í flugvélinni, og næstum hæft barn hennar. 22. apríl 2017 13:35 Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Sjá meira
Flugvélin yfirbókuð og læknirinn sturlaðist Nokkuð sérstakt atvik átti sér stað í flugvél United Airlines frá Chicago til Louisville í gær. 10. apríl 2017 11:30
Starfsmanni American Airlines vikið úr starfi vegna barnavagns Farþegi, sem náði eftirköstum atviksins á myndband, sagði að starfsmaður American Airlines hefði hrifsað barnavagninn með offorsi úr höndum móður, sem var einnig farþegi í flugvélinni, og næstum hæft barn hennar. 22. apríl 2017 13:35