Glaumbæjakirkja biður um hlut í ferðamannatekjum byggðasafnsins Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. maí 2015 08:00 Byggðasafnið á Glaumbæ og Glaumbæjarkirkja eru nágrannar og gestir safnsins leggja bílum sínum iðulega við kirkjuna. Mynd/Sigríður Sigurðardóttir „
Þetta er spurning um að það sé eitthvað komið til móts við þá sem leggja aðstöðuna eiginlega alla fram,“ segir Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæjarkirkju, um þá ósk að sóknin fái hlut í aðgangseyri ferðamanna að sýningu Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ. Um fjörutíu þúsund gestir heimsóttu Glaumbæ í fyrra og greiddu þar ýmist 1.200 krónur eða 900 krónur í aðgangseyri eftir því hvort þeir voru í hóp eða ekki. „Flæði ferðamanna á staðnum er líka inn í kirkjuna og kirkjugarðinn. Bílaplanið við kirkjuna er notað allt sumarið. Og kirkjan á lóðina undir safninu,“ segir séra Gísli sem hefur bæði sent byggðaráði Skagafjarðar erindi um málið og gengið á fund nefndarinnar. Auk þess sem ekkert endurgjald komi fyrir lóð byggðasafnsins standi til að skipuleggja nýja innkeyrslu að safninu og nýtt bílaplan. „Það þarf þá allt að vera í samráði við eiganda jarðarinnar, sem er Kirkjumálasjóður,“ undirstrikar sóknarpresturinn. Sigríður Sigurðardóttir, forstöðumaður byggðasafnsins, segir að þyrfti safnið að sjá á bak hluta aðgangseyrisins sem greiddur sé inn í gamla bæinn í Glaumbæ þyrfti það að fá peninga annars staðar frá eða að segja upp starfsfólki. „Þetta er okkar lifibrauð þannig að ég býst við að þetta verði afgreitt ljúflega og kurteislega með höfnun,“ segir Sigríður. Það sé hins vegar vissulega rétt að á álagstímum sprengi aðsóknin bílastæði safnsins utan af sér og þá leggi gestir við kirkjuna. „Við höfum haldið kirkjunni opinni fyrir sóknina mörg sumur sem er gott mál fyrir báða aðila,“ segir forstöðumaðurinn sem bendir á að á ákveðinn hátt sé um merkilegt mál að ræða. Það tengist erfiðum rekstri á kirkjum um allt land. „Hver veit nema fleiri sóknarnefndum detti í hug eitthvað álíka? Þegar menn fara að lenda í vandræðum með rekstur kirknanna sinna þá er eðlilegt að þeir líti í allar áttir og kanni möguleikana.“ Gísli segir að þótt nefnt hafi verið að kirkjan fengi hluta af aðgangseyri byggðasafnsins kæmu aðrar leiðir til greina. „Sveitarfélagið er að greiða fyrir aðstöðu hér og þar og þetta gæti kannski verið eitthvað svipað.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira