Enginn afsláttur gefinn með rafrænu eftirliti 8. nóvember 2009 15:14 Ragna Árnadóttir.
Í dóms- og mannréttindaráðuneytinu er unnið að gerð frumvarps sem felur meðal annars í sér í sér að innleiddar verði reglur sem gera afbrotamönnum kleift að ljúka hluta afplánunar með rafrænu eftirliti. Slíkt eftirlit er mjög íþyngjandi að mati Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannaréttindaráðherra. Hún segir að ekki sé verið að gefa neinn afslátt af refsingu fanga verði þetta fyrirkomulagið tekið upp hér á landi. Ragna segir að með rafrænu eftirliti sé átt við að fangi verði að halda sig á ákveðnu svæði, til að mynda heima hjá sér. Hann geti auk þess átt möguleika á að sækja vinnu. Ragna segir ljóst að þetta form henti alls ekki öllum föngum líkt og samfélagsþjónusta og reynslulausn henti ákveðnum hópum ekki. Nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir, að sögn Rögnu. Einnig er óvíst hvort að Fangelsismálastofnun komi til með að sinna eftirlitinu eða utanaðkomandi aðili. Ragna telur að rafrænt eftirlit sé verulega íþyngjandi fyrir fanga. „Það er ekki eins og verið sé að sleppa mönnum með refsingu heldur verða þeir að halda sig á ákveðnu svæði og auðvitað er það mjög íþyngjandi. Að mínu mati er ekki verið að gefa afslátt af refsingunni." Frumvarpinu sem nú er unnið að í ráðuneytinu er einnig ætlað að rýmka reglur um reynslulausn og auka heimildir svo fangar geti afplánað refsingu með samfélagsþjónustu. Ragna segir að frumvarpið sé alls ekki allsherjarlausn á vandamálum fangelsanna. Yfirvöld standi frammi fyrir miklum vanda. Nú séu 240 á biðlista í afplánun refsingar og 1600 bíði eftir að hefja afplánun vegna vararefsingar þar sem þeir hafi ekki greitt sektir. Þá telur Ragna nauðsynlegt að hugað verði að varanlegri lausn að nýju fangelsi því núverandi ástand sé óviðunandi.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Innlent Fleiri fréttir Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar Hafa þurft að leiðbeina starfsfólki barnaverndar um réttindi fósturbarna Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Sjá meira