Sjötíu þúsund plötur á átta árum 20. september 2011 11:15
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur selt plötur sínar í tæpum sjötíu þúsund eintökum. Þetta er mjög góður árangur, sérstaklega í ljósi þess að einungis átta ár eru liðin síðan fyrsta plata hans, Lonely Mountain, kom út. Um er að ræða sölu á plötunum bæði hér heima og erlendis en meirihlutinn er heimasala. Samkvæmt upplýsingum frá tónlistarmanninum sjálfum, hefur síðasta plata Mugison, Mugiboogie, selst mest eða í 25 þúsund eintökum. Skammt undan er Mugimama, Is This Monkeymusic með rúm 23 þúsund eintök. Í þriðja sæti kemur Lonely Mountain sem hefur selst í um þrettán þúsund stykkjum og því næst hafa Ítrekun og tónlist Mugison við kvikmyndirnar A Little Trip To Heaven, Mýrina og Niceland selst samanlagt í sex til sjö þúsund eintökum. Fjórða eiginlega sólóplata Mugisons kemur út í næstu viku, eða laugardaginn 1. október, og heitir hún Haglél, eftir laginu sem hljómaði í sumar við góðar undirtektir. Sama dag heldur hann útgáfutónleika í Fríkirkjunni. Fólk getur þó keypt plötuna viku fyrr í forsölu og hlaðið henni niður á síðunni Mugison.is. Ef eitthvað er að marka viðtökurnar við síðustu plötum má búast við mjög góðri sölu á Hagléli og skemmir það varla fyrir að á henni syngur Mugison í fyrsta sinn öll lögin á íslensku. - fb
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira