Vissu ekki að samræði væri óeðlilegt 11. september 2009 05:00 Sorg Heyrnarlaus og heyrnarskert börn eru í töluverðri áhættu fyrir kynferðislegri misnotkun. nordicphotos/getty
Börn sem námu við Heyrnleysingjaskólann og sættu þar kynferðislegu ofbeldi höfðu á þeim tíma ekki skilning á því sem var að gerast og áttuðu sig ekki á hvort eðlilegt væri eða ekki að börn hefðu samræði eða önnur kynferðismök. Þetta kemur fram í skýrslu vistheimilanefndar forsætisráðherra. Er vitnað til orða sumra viðmælenda nefndarinnar um að þeir hafi ekki beinlínis verið þvingaðir heldur tekið þátt í kynferðislegum athöfnum sem þeir hafi haft takmarkaðan skilning á. Í sumum tilvikum hafi þetta haft þau áhrif að fólkið hafi verið ringlað gagnvart kynferði sínu og ekki áttað sig á kynhneigð sinni og því hverjar forsendur fyrir kynlífi væru fyrr en á efri unglingsárum. Átján þeirra sem nefndin ræddi við greindu frá því að hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, kynferðislegri áreitni eða hafa orðið vitni að slíku á námsárunum við skólann. Var það ýmist framið af öðrum nemendum, tilteknum kennurum eða utanaðkomandi einstaklingi. Í skýrslunni er sagt frá könnun sem Rannsóknir og greining gerðu meðal heyrnarlausra árið 2004. Niðurstöður hennar sýna, svo ekki verður um villst, að heyrnarlaus og heyrnarskert börn eru í töluverðri áhættu fyrir kynferðislegri misnotkun. Eru þær í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna sem benda einnig til þess að heyrnarlausir geti verið í sérstakri áhættu í skólum og á heimavistum. Nýleg norsk könnun gefur til kynna að misnotkun heyrnarlausra hafi verið mun alvarlegri en þeirra sem voru heyrandi og að fáir þeirra heyrnarlausu hafi sagt frá misnotkuninni. Einnig kom í ljós að í næstum helmingi tilvika hefði gerandinn einnig verið heyrnarlaus og að um helmingur tilvika hefði átt sér stað í sérskóla fyrir heyrnarlausa. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira