Innlent

Atvinnuleysi aldrei minna

Atvinnuleysi á Íslandi er minna en í nokkrum öðrum löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins, að sögn Lárusar. Á þriðja ársfjórðungi 2005 voru að meðaltali 2.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 1,8% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 1,2% hjá körlum en 2,4% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 3,5%. Til samanburðar mældist atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi í fyrra 2,6%. Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2005 var 164 þúsund manns og fjölgaði um sex þúsund frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 167 þúsund manns sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 88,3 prósent en kvenna 77,7 prósent. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Meðalfjöldi vinnustunda mælist- 43,8 klukkustundir á viku, 48,6 klukkustundir hjá körlum en 37,4 klukkustundir hjá konum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×