Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona staðin að innbroti 11. september 2009 12:09 Atvikið átti sér stað í N1 verslun. Mynd/ Arnþór.
Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona, sem bæði voru undir áhrifum fíkniefna, voru staðin að verki við stórfelldan þjófnað í verslun N-1, við Hrísmýri á Selfossi í nótt, og kom til átaka við lögreglu á vettvangi. Verslunin var áður hluti af Bílanausti og eru þar meðal annars seldir íhlutir og varahlutir í bíla og mótorhjól. Fólkið, sem er íslenskt og á þrítugsaldri, hafði safnað saman miklu þýfi í marga pappakassa og borið nokkra þeirra út að bíl sínum, þegar lögregla kom á vettvang og stöðvaði leikinn. Þau brugðust bæði illa við og kom til átaka á milli mannsins og lögrelgumanna, sem endaði með því að hann féll vöruhillur og skrámaðist. Þau voru færð á lögreglustöðina og kallað á lækni til að búa um skrámur mannsins og meta ástand konunnar, sem komin er sex mánuði á leið. Þá kom í ljós að þau voru með 130 þúsund krónur á sér úr versluninni og við leit í tveimur bílum, sem þau hafa til umráða, fundust fíkniefni, en þau voru bæði undri áhrifum fíkniefna, þegar þau voru handtekin. Andvirði þýfisins, sem þau voru búin að tína til i kassa, nemur rúmlega einni milljón króna, en auk þess höfðu þau tekið tölvur og skjái til handargagns. Þau hafa bæði komið við sögu lögreglu áður vegna afbrota.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira