Á fimmta tug beið bana í gær 13. október 2005 19:15
Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði. Að minnsta kosti tuttugu létu lífið í tveimur sprengjutilræðum í bæ skammt frá Mosul. Þá dóu tíu þegar bíll fullur af sprengiefnum var sprengdur upp fyrir utan sjíamosku í þorpi skammt utan við Bagdad. Sjö féllu og í það minnsta áttatíu slösuðust þegar öflug bílsprengja var sprengd fyrir utan fjölfarinn veitingastað í Talibia-hverfinu um hádegisleytið í Bagdad í gær. Ekki er vitað hverjir voru að verki en handbragð árásarinnar ber keim af tilræðum fylgismanna Abu Musab al-Zarqawi sem hafa verið stórtækir í hryðjuverkum undanfarna mánuði. Menn al-Zarqawi gerðu sér hins vegar lítið fyrir í gær og skutu til bana Wael al-Rubaei, hershöfðingja sem hafði yfirumsjón með að uppræta skæruhernað og hryðjuverk í landinu, og bílstjóra hans. Al-Kaída-sellan í Írak sem al-Zarqawi leiðir lýsti verknaðinum á hendur sér í yfirlýsingu á netinu í gær. Þetta er í annað sinn á jafnmörgum dögum sem íröskum embættismanni er banað en í fyrradag var hátt settur starfsmaður viðskiptaráðuneytisins myrtur. Í bænum Tuz Khormato, skammt suður af Kirkuk, týndu fimm manns lífi þegar maður ók bifreið sinni hlaðinni sprengiefni að hópi fólks og sprengdi hana í loft upp. Þrettán særðust alvarlega. Í Kirkuk dóu tveir þegar sprengjur úr sprengjuvörpu höfnuðu á íbúðarhúsi. Meðan á öllu þessu stóð gerðu bandarískar og íraskar öryggissveitir rassíu í Abu Ghraib-hverfinu í Bagdad og handtóku 300 manns sem grunaðir eru um árásir á fangelsið illræmda sem er í hverfinu, og á veginum sem liggur til alþjóðaflugvallarins í höfuðborginni. Í Búkarest í Rúmeníu í gær fögnuðu menn innilega heimkomu þriggja blaða- og fréttamanna sem látnir voru lausir úr haldi mannræningja deginum áður. Þeim hafði verið rænt í Bagdad 28. mars síðastliðinn og kröfðust ræningjarnir að Rúmenar kölluðu hersveitir sínar heim frá Írak. Við þeim kröfum var ekki orðið en engu að síður var þremenningunum sleppt.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira