Hóteleigandi brjálaður út í borgina Magnús Már Guðmundsson skrifar 23. júlí 2008 12:48 Framkvæmdir við Skólavörðustíg.
Hóteleigandi við Skólavörðustíg stakk upp á því að Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, kæmi og bæði viðskiptavini sína afsökunar á því að vatn var tekið af hótelinu í gær og afhenti þeim um leið miða í Sundhöllina. Frá klukkan sjö í gærmorgun til fjögur seinnipartinn var vatnslaust á Skólavörðustíg. Tilkynning þess efnis barst frá Orkuveitu Reykjavíkur daginn áður en framkvæmdirnir hófust. Eðlilegra hefði verið að vatnið væri tekið af um nóttina að mati Ragnars Guðmundssonar, eiganda Hótel Adams við Skólavörðustíg. ,,Ég hringdi í Jakob Frímann Magnússon og spurði hvað ég ætti að gera. Þá kom upp sú hugmynd að ég fengi miða til að láta fólk fá til að fara í Sundhöllina. Á móti stakk ég upp á því að hann kæmi með Ólaf borgarstjóra með sér svo hann gæti beðið fólk afsökunar um leið og hann afhenti miðanna," segir Ragnar og bætir við að Ólafur hafi ekki látið sjá sig. Frá Hallgrímskirkju. Framkvæmdir við Skólavörðustíg. Hótelgestum Ragnars hefur fækkað um 70% miðað við seinasta ár og kennir hann tímasetningu framkvæmdanna við götuna um þann samdrátt. Ragnar gagnrýnir embættismenn borgarinnar harðlega og þá sér í lagi fyrir framgöngu þeirra í málefnum Skólavörðustígs. ,,Embættismenn stjórna borginni enda er alltaf verið að skipta um pólitíkusa. Embættismennirnir eru alltaf að sýna að það eru þeir sem hafa valdið." Breytingarnar á Skólavörðustíg eiga rétt á sér að mati Ragnars sem segir að eigendur fasteigna og rekstraraðilar við götuna hafi á fundi í febrúar lagt til að framkvæmdirnar hæfust í janúar á næsti ári. Ekki var tekið tillit til tillögunnar. ,,Embættismenn borgarinnar ákveða að gera eitthvað þegar þeim dettur það í hug." ,,Ég hugsa að Orkuveitan hefði gaman að setja nýjan rafmagnskapal inn í Kringluna. Það væri hægt að leggja hann á milli 15. og 25. desember og hafa rafmagnslaust dagana 20. til 24. desember. Það er alveg rétti tíminn og yrði vafalaust vinsælt," segir Ragnar að lokum.
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Fleiri fréttir Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Sjá meira