Innlent

Seljist ekki hvalkjötið er veiðum sjálfhætt

Jón Örn Guðbjartsson skrifar
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir að seljist ekki hvalkjöt sem nú er í frystigeymslum hér á landi sé hvalveiðum sjálfhætt. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir að ekki svari kostnaði að veiða þær tvær langreyðar sem eftir eru af kvótanum.

Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé ekki einhuga í hvalveiðimálum ætlar sjávarútvegsráðherra ekki af beygja af leið en Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra hefur lýst andstöðu gegn hvalveiðum okkar Íslendinga. Einar K. Guðfinnsson segir að þetta mál verði skoðað á næstunni í ríkisstjórninni og á því finnist án efa farsæl lausn. Hvalveiðimálið fari hins vegar ekki alveg eftir flokksböndum. Þrátt fyrir þá gagnrýni sem komið hafi fram á veiðarnar hafi hann aldrei fengið bakþanka vegna ákvörðunar sinnar um að hefja hvalveiðar.



Í dag voru þrír bátar við hrefnuveiðar á vegum Hafró, en þær veiðar eru í vísindaskyni og má veiða 39 dýr. Ekki fengust fréttir af veiðinni. Á þessu fiskveiðiári er veitt leyfi í atvinnuskyni fyrir veiðum á 30 hrefnum og níu langreyðum. Veiðiheimildin nær til 1. september næstkomandi.

Samkvæmt tölum frá Hafró eru óveiddar 28 hrefnur og tvær langreyðar. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, segir að ekki verði ráðist í að gangsetja skip til að ná í þær tvær langreyðar sem eftir eru af kvótanum, það sé allt of kostnaðarsamt.



Eftirspurn var eftir hrefnukjöti í fyrra og segir sjávarútvegsráðherra að kjöt hafi selst vel á hérlendis en tafsamt hafi reynst að bjóða afurðirnar erlendis. Ekki fékkst uppgefið í dag hversu mikið er af langeyðakjöti í frystigeymslum hér á landi.

Sjávarútvegsráðherra segir það erfiða pólitíska ákvörðun fyrir stjórnvöld að banna atvinnugreinar sem standa undir sér. Seljist kjötið hins vegar ekki, verði veiðunum sjálfhætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×