Innlent

Sóley eykur breiddina í borgarstjórnarflokknum

Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi.
Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir að það sé starfsregla að báðir borgarfulltrúar flokksins og 1. varaborgarfulltrúi séu viðstaddir fundi borgarstjórnar flokksins. Með því sé verið að auka breiddina í borgarstjórnarflokknum.

Borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa hlutfallslega oftast kallað til varamenn í sinn stað á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur, það sem af er ári, ef miðað er við fjölda þeirra í borgarstjórn. Svandís Svavarsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúar VG, hafa 21 sinni kallað inn varamenn til að koma inn í sinn stað.

Sóley Tómasdóttir 1. varaborgarfulltrúi Vinstri grænna tekur í sama streng og Þorleifur. Hún segir að með því að kalla til varaborgarfulltrúa á hvern fund og fjölga þannig fulltrúum flokksins á fundinum megi stuðla að auknu lýðræði. Þá bendir hún jafnframt á að borgarfulltrúar flokksins kalli hana til í sinn stað vegna þess að þeir telji hana búa yfir ákveðinni þekkingu sem geti gagnast á borgarstjórnarfundum.

Sóley vekur sérstaka athygli á því að 1. varaborgarfulltrúi sé á föstum launum hjá borginni, sem hækki ekki þrátt fyrir að fulltrúinn sé kallaður á fundi borgarstjórnar. Það leiði því ekki af sér aukinn kostnað þegar að hún er kölluð inn sem varamaður.




Tengdar fréttir

Hanna Birna mætir best en Sigrún Elsa verst

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur mætt verst allra borgarfulltrúa á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári.

Borgarfulltrúar VG kalla oftast inn varamenn

Borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa oftast kallað inn varamenn fyrir sig á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári ef miðað er við fjölda þeirra í borgarstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×