Innlent

Benda á að 44 af 50 hafi útskrifast með góðum árangri

Réttargeðdeildin að Sogni
Réttargeðdeildin að Sogni
Á þeim nítján árum sem réttargeðdeildin á Sogni hefur verið starfsrækt hafa 50 sjúklingar verið innlagðir og hafa 44 þeirra verið útskrifaðir með góðum árangri. Enginn þeirra hefur verið endurdæmdur. Þetta kemur fram í ályktun eftir starfsmannafund á Sogni í dag. Í henni segir einnig að starfsmenn hafi mikla reynslu og starfsaldur þeirra sé hár og þekking á málefnum þeirra sem þangað leita sé afar mikil og miklvæg í meðferð sjúklinga. Starfsmennirnir skora á ráðherra og stjórnendur Landspítala Háskólasjúkrahúss til að endurskoða ákvörðun sína um að flytja starfsemina á Klepp.

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan:

Fundur starfsmanna á Sogni sem eru félagsmenn í SFR, haldinn að Réttargeðdeildinni á Sogni, föstudaginn 14. október ályktar eftirfarandi:

Vegna þeirra áforma um að flytja Réttargeðdeildina á Sogni að Landspítala Háskólasjúkrahúsi, Kleppi  vilja félagsmenn SFR koma sínum sjónarmiðum á framfæri:

Í fyrsta lagi hefur komið fram í umræðunni um flutning deildarinnar að fagleg rök liggi þar að baki. Félagsmenn SFR vilja benda á að á þeim 19 árum sem réttargeðdeildin á Sogni hefur verið starfrækt hafa 50 sjúklingar verið innlagðir og hafa 44 verið útskrifaðir með góðum árangri. Enginn þeirra hefur verið endurdæmdur og telst það að mati starfsmanna til marks um hið faglega og góða starf sem þar fer fram. Hundrað prósent árangur hlýtur að segja eitthvað um hið faglega starf sem fram fer á Sogni.

Í öðru lagi hafa starfsmenn á Sogni afar mikla reynslu  en þar er starfsaldur hár og þekking á málefnum þeirra sem þangað þurfa að leita afar mikil og mikilvæg fyrir meðferð sjúklinga. Á Sogni er til staðar sérfræðireynsla og þekking á meðferð ósakhæfra afbrotamanna sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi.

Umhverfi réttargeðdeildarinnar er einstakt og njóta sjúklingar þess í meðferð sinni . Haldið hefur verið fram að húsakynni hennar séu í slæmu ástandi og vilja starfsmenn benda á að ástand þess sé að engu leyti  verra en húsakynni geðsviðs Landspítala á Kleppi. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu á Sogni og þjónar það ágætlega sínu hlutverki þó svo að það sé alltaf rými fyrir endurbætur. 

Við mótmælum því þessum rökum algjörlega og drögum í efa fullyrðingar um að þar liggi að baki ákvörðun sem byggð er á faglegum forsendum en það er eins og áður sagði algjörlega í mótsögn við þann árangur sem hefur náðst í meðferð sjúklinga á Sogni.

Félagsmenn SFR skora á ráðherra og stjórnendur Landspítala Háskólasjúkrahúss að endurskoða þessa ákvörðun.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×