Árásarmaður laus úr haldi 13. október 2005 14:32
Tuttugu og fimm ára maður sem er grunaður um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni með hafnaboltakylfu, í Öxnadal nýlega, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn, - þremur dögum áður en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir honum rann út. Börn mannsins sem ráðist var á, voru viðstödd þegar til átakanna kom. Maðurinn er talinn hafa höfuðkúpubrotið mann á fertugsaldi í Öxnadal, aðfaranótt 5. ágúst. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram til dagsins í dag og þann úrskurð staðfesti Hæstiréttur. Óttast var að maðurinn gæti torveldað rannsókn málsins, til dæmis með því að hafa áhrif á vitni, ef hann gengi laus. Hann var þó látinn laus í síðustu viku, þar eð rannsókn var þá að mestu lokið að sögn lögreglu. Tilkynnt var um slys þegar lögregla og sjúkralið var kallað á vettvang í Öxnadal, en fljótlega kom í ljós að það var rangt. Þá hafði blætt inn á heila mannins, sem varð fyrir árásinni, auk þess sem hann kinnbeins- og nefbrotnaði. Í úrskurði læknis segir að áverkarnir hefðu hæglega getað leitt til mun alvarlegri afleiðinga, jafnvel dauða. Sjö voru á staðnum þegar til átakanna kom, á tveimur bifreiðum. Í annarri þeirra var fjölskylda á leið úr sumarbústað en ákveðið hafði verið að hin bifreiðin æki til móts við þau. Tvö börn og kona mannsins, sem hlaut áverkana, voru meðal þeirra sem voru á staðnum þegar átökin brutust út, en þau voru farin af vettvangi þegar lögreglu og sjúkralið bar að. Árásarmaðurin, sem og sá sem hlaut áverkana eru báðir frá Akureyri og hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála. Ekki er þó talið að til átakanna hafi komið vegna þess háttar viðskipta. að sögn lögreglu.
Fréttir Innlent Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Fleiri fréttir Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Sjá meira