Tryggja ekki heimalagnir fólks 13. október 2005 14:32
Nokkuð algengt er að fólk verði fyrir verulegu tjóni af völdum vatns ef heimlögn að híbýlum þess bilar eða fer í sundur. Það sem kemur hins vegar á óvart er að tjónþolar geta ekki tryggt sig fyrir slíku hjá tryggingafélögum sínum, þótt þeir eigi og beri ábyrgð á þessum lögnum. Orkuveitan stendur nú í umfangsmiklum framkvæmdum til að endurnýja heimlagnir í borginni, enda eru þær komnar á tíma og geta gefið sig hvenær sem er. Íbúi í Goðalandi í Reykjavík hafði samband við blaðið og sagði farir sínar ekki sléttar. Orkuveitan var að skipta um inntak hjá honum, þegar heimlögnin brast. Vatn flæddi inn og um allt þannig að mikið tjón hlaust af. Íbúinn hringdi í nokkur tryggingafélög en ekkert þeirra kvaðst myndu tryggja fyrir slíku tjóni. Íbúinn sat því uppi með tjónið en benti jafnframt á að gömlu heimlagnirnar væru í raun "tímasprengja" sem fólk sæti á, þar til Orkuveitan myndi knýja dyra til að skipta um lagnir sem hún gerði ekki eftir pöntun heldur samkvæmt eigin áætlun. Jón Óskarsson hjá Orkuveitunni sagði að kerfisbundið væri unnið að endurnýjun heimlagna og vatnsinntaka í hverfum borgarinnar. Hann sagði að samkvæmt gildandi reglum ættu húseigendur heimlagnir út í götu sem lagðar hefðu verið fyrir 1992 og bæru ábyrgð á þeim þar til búið væri að skipta um þær. Endurnýjun væri á kostnað Orkuveitunnar sem eignaðist þá heimlagnirnar og inntökin. "Ég býst við að það séu einhverjar þúsundir heimlagna sem orðið er aðkallandi að endurnýja," sagði Jón og bætti við að líftími þeirra færi nokkuð eftir því hvernig hefði verið staðið að lagningu þeirra. "Heimlagnafjöldinn nemur tugum þúsunda alls og á ári eru 500 - 700 endurnýjaðar. Oftast eru þetta þannig bilanir að þær valda ekki stórtjóni. Þó getur komið fyrir að þær valdi miklu flóði. Það er of mikið um að við séum kallaðir til vegna vatnsflóða hjá fólki af völdum heimlagna en það er þó ekkert sem er daglegt." "Við förum aldrei út fyrir útveggi fasteignar með tryggingar," sagði Lúðvík Birgisson hjá Tryggingamiðstöðinni. "Það er algilt hjá öllum tryggingafélögum."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira