Hægir verulega á útgjaldaaukningu 13. október 2005 14:32
Kostnaður vegna embættis Ríkislögreglustjóra jókst um 19 milljónir á síðasta ári en frá árinu 1998 hefur kostnaður vegna embættisins rúmlega þrefaldast. Þrátt fyrir aukin heildarútgjöld gætti verulegs aðhalds í fyrra miðað við árið áður og flestir kostnaðarliðir lækkuðu eftir samfellda útþenslu frá árinu 1998. Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra, segir að útgjaldaaukningin frá 1998 eigi sér eðlilegar skýringar. "Embættinu hafa verið falin mjög stór verkefni á síðustu árum og undir það hefur verið felld margvísleg þjónusta við lögregluna í landinu og fleiri. Það er því ekki um beinan kostnaðarauka fyrir ríkissjóð að ræða hvað þessi verkefni varðar. Hér er fyrst og fremst um hagkvæmnis- og samræmingarsjónarmið að ræða. Einnig má nefna kostnað vegna verkefna sem stafa af alþjóðlegum skuldbindingum." Að sögn Guðmundar Stefánssonar, skrifstofustjóra hjá embætti Ríkislögreglustjóra, var embættið innan fjárheimilda í fyrra. "Endanleg niðurstaða liggur þó ekki fyrir og er því byggt á bráðabirgðatölum í skýrslunni. Fjársýsla ríkisins er þessa dagana að ganga frá reikningnum fyrir embættið," sagði Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. Útgjöld vegna húsnæðis fara langt með að tvöfaldast milli áranna 2002 og 2003. Í skýrslunni er sagt að stærstur hluti húsnæðiskostnaðar sé húsaleiga en auk þess komi til kostnaður vegna framkvæmda við húsnæði Fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar, sem Ríkislögreglustjóri hefur umsjón með. Stofnkostnaður vegna breytinga á Fjarskiptamiðstöðinni vegur þyngst en til þess að mæta honum fékk embættið sérstaka aukafjárveitingu upp á 23 milljónir. Þá hefur leiga á húsnæði embættisins við Skúlagötu hækkað töluvert. Stærsti útgjaldarliður embættisins er launakostnaður og hefur hann vaxið hröðum skrefum síðan embættið var stofnað árið 1997. Starfsmönnum fjölgaði um fimm milli áranna, úr 72 í 79, en launakostnaður á sama tíma fór úr rúmum 418 milljónum króna í rúmar 465 milljónir. Í fyrra færðust Almannavarnir ríkisins til embættis Ríkislögreglustjóra og með þeim fjórir starfsmenn. Því til viðbótar var fjölgað um tvo lögreglumenn í efnahagsbrotadeild og einn löglærðan fulltrúa.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira