Ekkert díoxínkjöt á Íslandi 9. desember 2008 17:32
Ekkert írskt, díoxínmengað svínakjöt er til sölu hér á landi samkvæmt athugun Matvælastofnunar. Stofnunin sendi frá sér tilkynningu vegna frétta af greiningu efnisins í kjöti á Írlandi, sem verið er að innkalla í 21 landi vegna mengunarinnar. Þar segir að stofnuninni hafi borist tilkynning frá RASFF viðvörunarkerfi Evrópu (Rapid Alert System for Food and Feed) síðastliðinn laugardag um að magn díoxíns og díoxín líkra PCB efna í írsku svínakjöti hefði mælst langt yfir leyfilegum mörkum. Þá hafi hafist vinna við að kanna innflutning á svínakjöti framleiddu eftir fyrsta september, en það eru þær vörur sem írsk stjórnvöld hafa innkallað. „Samkvæmt gögnum sem MAST hefur nú aflað hefur ekkert svínakjöt borist til landsins frá Írlandi fyrir utan 24 kíló af matreiddu beikoni, en talið er víst að umrætt beikon hafi verið framleitt fyrir 1. september," segir í tilkynningunni. Hér á landi hafa verið settar reglur um leyfileg hámarksgildi aðskotaefna og þar með díoxíns í matvælum og eru sömu reglur í gildi hjá Evrópusambandinu. Díoxín og díoxínlík PCB efni (polychlorinated biphenyl) eru þrávirk efni sem talin eru geta valdið krabbameini og öðrum eituráhrifum. Þau verða til sem aukaafurð við ýmsa framleiðslu og myndast einnig í náttúrunni. Þau brotna hægt niður og finnast því víða í umhverfinu og í litlu magni í ýmsum matvælum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira