Mennirnir aldrei komið við sögu 13. október 2005 14:32
Lögreglan í Reykjavík lagði hald á mikið af vopnum, skotfærum og bareflum, við húsleit í íbúð í austurhluta Reykjavíkur í nótt. Þrír menn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu vegna málsins, en athygli vekur að enginn þeirra hefur áður komið við sögu lögreglu. Nokkru eftir miðnætti í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af tveimur mönnum við verslun í Lágmúla, en í bifreið þeirra fannst þýfi og fíkniefni. Í kjölfarið var gerð rannsókn á heimilum þeirra. Axir, hnífar, sveðjur og fjöldi barefla af ýmsu tagi og sum heimasmíðuð, blöstu við lögreglu á heimili annars þeirra í Austurbænum. Einnig fannst riffill og tvær afsagaðar haglabyssur. Ólöglegt er að saga framan af byssunum, en slíkt auðveldar mönnum að bera þær innanklæða. Enn er á huldu hvað mennirnir ætluðu sér með slíkt vopnabúr, en gríðarlegt magn skotfæra gefur til kynna að hér sé ekki um að ræða sakleysislega söfnunaráráttu. Lögregla kannar nú hvort þessi tæki og tól tengist innbrotum á höfuðborgarsvæðinu, en einnig eru dæmi um að vopn séu notuð sem skiptimynt í fíkniefnaviðskiptum. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn, segir að vitað sé að svona vopn hafa tengst alvarlegum ofbeldisbrotum. Það sé vel þekkt í íslenskum afbrotaheimi. Karl Steinar segir þó sjaldgæft að lögregla leggi hald á svo mikinn fjölda vopna. Þá þykir óvenjulegt að mennirnir þrír sem voru handteknir vegna málsins hafa nánast ekkert komið við sögu lögreglu fyrr. Þeir eru frá Reykjavík, Kópavogi og Austurbyggð, á aldrinum 19 til 23 ára.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira