Fjölmenn mótmæli í Úsbekistan 13. október 2005 19:12
Þúsundir mótmæla eftir að meintir íslamskir öfgamenn slepptu hundruðum fanga í Úsbekistan í morgun. Vísbendingar eru um að mótmælendur séu þó ekki andstæðingar öfgamannanna meintu heldur beinist mótmælin að stjórnvöldum. Átökin hófust í morgun þegar að hópur uppreisnarmanna réðst inn í fangelsi og hjálpaði félögum sínum að brjótast út. Heimamenn segja að sextíu föngum hafi verið sleppt, CNN segir þá skipta hundruðum. Í kjölfarið hertók hópurinn lögreglustöðina í bænum Andijan í austurhluta landsins og heldur þar tíu lögreglumönnum í gíslingu. Tugir hermanna brunuðu inn í bæinn skömmu síðar en ekki er ljóst hver heldur um stjórnvölinn þar. Um tvö þúsund manns þustu út á götur Andijan og mótmæltu en enga lögreglumenn var að sjá. Byssugelt heyrist og rútum og vörubílum hefur verið lagt þvert yfir umferðaræðar að miðbænum og nokkrar byggingar standa þar í ljósum logum. Níu liggja í valnum eftir átök morgunsins, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu í höfuðborginni Tashkent. 39 eru sárir. Uppreisnarmennirnir eru múslímar, en Andijan er í Freghana-dalnum þar sem fjöldi múslíma er mikill og fátækt er almenn. Hermt er að dalurinn sé eitthvert viðkvæmasta múslímasvæði í Mið-Asíu. Ástæða mótmæla og uppreisnartilburða í einræðisríkinu Úsbekistan er sú að múslímar sem ekki sætta sig við ríkisútgáfu trúarinnar eru hnepptir í fangelsi og kúgaðir. Úsbekistan er bandamaður Bandaríkjanna í stríðinu gegn hryðjuverkum og þar er að finna bandaríska herstöð, en ástand mannréttinda er sagt þar mjög bágt. Mótmælendur hafa látið til sín taka á götum borga undanfarið til að mótmæla því að tugir kaupsýslumanna hafi verið fangelsaðir, sakaðir um að fjármagna starf íslamskra öfgahópa. Eftir atburði morgunsins var útsendingum erlendra sjónvarpsstöðva hætt í Úsbekistan og í stað þeirra send út dagskrá innlendra skemmtistöðva.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira