Hver að verða síðastur í berjamó 13. október 2005 14:32
Nú fer hver að verða síðastur að bregða sér í berjamó, að mati Sveins Rúnars Haukssonar, læknis og sérlegs áhugamanns um berjatínslu. Hann segir áberandi mikið um aðalbláber núna en lítið um bláber og krækiber. "Ég veit ekki hvað veldur, en það kunna að vera þurrkarnir," sagði Sveinn Rúnar og bætti við að fólk þyrfti að fara að drífa sig af stað ef það ætlaði á annað borð í berjamó. "Aðalbláberin eru allvel sprottin og víða orðin stór og góð. Svo er ekki víst að þau stækki mikið meira miðað við þurrkinn sem verið hefur, heldur gætu þau bara farið að springa og skorpna." Sveinn Rúnar sagði að eins og í fyrra hefði spretta víða verið um tveimur vikum á undan áætlun og taldi einsýnt að þar spiluðu inn í breytingar sem orðnar væru á veðurfari hér, enda hafi hver mánuður verið hlýrri en í meðalári núna í 28 til 29 mánuði samfleytt. "Maður var vanur að fara í berjamó rétt undir mánaðamótin og hafði svo kannski viku þar fram yfir áður en næturfrost skullu á. Núna er þetta að verða allt upp í sex vikna tímabil." Hann sagði jafnvel brögð að því norðanlands að hafa getað farið að handtína aðalbláber í kringum 23. júlí, viku fyrir verslunarmannahelgi. "Svo er annað sem fylgt hefur veðurlaginu, ekki eins gott. Skordýralífið blómstrar og þar á meðal birkifeti, sem er 2 til 3 sentímetra löng fjölfætla," sagði Sveinn Rúnar og bætti við að sjá mætti heilu breiðurnar þar sem birkifetinn hefði eyðilegt berjalyng. "Einhvern veginn fer hann að því að eyðileggja æðakerfið á lynginu þannig að blöðin skorpna upp, verða rauðbrún og næfurþunn þannig að ekkert sést nema æðarnar." Sveinn Rúnar sagði að einnig hefði borið á óværunni í fyrra. "Þegar þetta leggst við þurrkinn er ýmis vá sem steðjar að berjasprettu," sagði hann. Sveinn Rúnar var nýkominn úr aðalbláberjatínslu í Fljótunum skammt frá Bjarnagili í Skagafirði þegar í hann náðist. Hann sagðist hafa setið við og varla hreyft sig frá smábletti í eina þrjá til fjóra klukkutíma. "Það er til marks um að berjamórinn er góður ef maður stendur sig að því að hreyfa sig ekki úr stað."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira