Sýslumaður útilokar ekki ábyrgð 13. október 2005 14:32
Miklar kröfur hvíla á jörðinni Brautarholti á Kjalarnesi vegna gjaldþrots svínabúsins að Brautarholti. Kröfuhafar hafa fengið fjárnám í jörðinni. Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, stöðvaði uppboðsmeðferð þegar hann varð þess varð áskynja að Brautarholt væri óðalsjörð en sérlög gilda um slíkar jarðir. Veðsetningar og fjárnám á Brautarholti geta þess vegna verið í uppnámi. Kröfurnar munu nema hundruðum milljóna. "Það þarf að þinglýsa skjölum þegar jörð er gerð að óðalsjörð," segir Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, sem stöðvaði uppboðið um stundarsakir. Rúnar segir ekki venju hjá embættinu að svara spurningum fjölmiðla um einstök mál sem kunna að vera til meðferðar en þar sem málið hafi verið í fréttum segist hann ekki geta borið á móti tilvist þess. Aðspurður segir Rúnar ekki getað svarað hvers vegna hægt hafi verið að þinglýsa veðum á jörðina þar sem hún er þinglýst sem óðal hjá sama embætti. Hann segir hluta þinglýsinganna hafa farið fram fyrir allmörgum árum síðan. Þegar veðum á jörðinni var þinglýst hefði átt að koma á daginn að um óðalsjörð væri að ræða og um leið að óheimilt væri að taka veð í henni. Þá hefðu lántakandi og lánveitandi átt að fylgjast með hvort veðsetningarnar hafi verið heimilar. Rúnar segist ekki geta útilokað að sýslumannsembættið gæti dregist inn í skaðabótamál vegna þess að veðum í jörðinni var þinglýst. Rúnar segir málið vera í biðstöðu á meðan verið er að fara yfir málið með tilliti til jarðarlaga og ákvæða um óðalsjarðir. Skoða þurfi hvað verði gert í framhaldinu og búast megi við að óðalseigendur að Brautarholti verði kallaðir saman á fund. Rúnar segir eigendur, eða þá sem eiga rétt til óðalsins, geta leyst til sín kröfur eins og þær sem hvíla á Brautarholti. Ef eigendurnir gera það ekki er mögulegt að uppboð fari fram.
Fréttir Innlent Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira