Skiptimynt í fíkniefnaviðskiptum 13. október 2005 14:32
Mikill fjöldi vopna og skotfæra fannst við húsleit í Reykjavík í fyrrinótt. Þrír menn um tvítugt voru handteknir. Vopnin reyndust vera þýfi, mörg úr innbroti í heimahúsi í Garðabæ. Tveir menn, þeir sem brutust inn í húsið í Garðabæ, voru í haldi lögreglunnar í Hafnarfirði í fyrrinótt þegar vopnin fundust. Þremenningarnir höfðu tekið við vopnunum hjá innbrotsþjófunum vegna fíkniefnaviðskipta. Á heimili eins þremenninganna sem voru handteknir í framhaldi af húsleitinni fundust tvær afsagaðar haglabyssur, 22 kalibera riffill, öxi, kasthnífur, fimm aðrir hnífar, hamar, kylfur og sverð auk hundraða skothylkja. Ein kylfanna var búin til úr girðingastaur. Lögreglan í Reykjavík framkvæmdi húsleitina í fyrrinótt en til stóð að lögreglan í Hafnarfirði myndi gera húsleit í sama húsi í gærmorgun. Algjör tilviljun var að málin sköruðust og unnu lögregluembættin í sameiningu við að leysa málið. "Við ætluðum að fá húsleitarúrskurð í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun og leita í þessu sama húsi. Við vorum með tvo menn í haldi vegna málsins," segir Gísli Þorsteinsson, lögreglufulltrúi í Hafnarfirði. Gísli segir að byssunum þremur hafi verið stolið í innbrotinu í Garðabæ auk annarra vopna. Vopnunum var stolið í innbrotum víða á höfuðborgarsvæðinu, mörgum í innbrotinu í Garðabæ. Mennirnir sem tóku við vopnunum eru fæddir árin 1985, 1982 og 1981. Þeir hafa lítið sem ekkert komið við sögu lögreglu áður. "Það er sérstakt að finna svo mikið af vopnum hjá einstaklingum sem við þekkjum ekki. Aðgerð lögreglu hafði frekar stuttan aðdraganda," segir Karl Steinar Valsson hjá lögreglunni í Reykjavík. Í fyrstu voru höfð afskipti af tveimur mannanna sem voru í bíl í Lágmúla. Í framhaldinu var fengin heimild til húsleitar hjá öðrum þeirra. Þriðji maðurinn var staddur í íbúðinni þar sem vopnin fundust.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Sjá meira