Stórstjörnur í Leifsstöð 13. október 2005 14:32
Íslenskir ferðalangar í Leifsstöð skildu ekkert í látunum þegar ljósmyndarar stukku að tveimur farþegum í tollinum. Í ljós kom að þar voru á ferð Hollywood-stjörnur sem komnar eru hingað til lands til að leika í nýrri mynd Baltasars Kormáks. Þau Forrest Whitaker og Julia Stiles eru velþekktir leikarar og sannkallaðar kvikmyndastjörnur. Það var þó ekki á þeim að sjá þegar þau lentu í Keflavík í morgun að þar væru neinar prímadonnur á ferð. Atli Már Gylfason, ljósmyndari Víkurfrétta, smellti myndum af stjörnunum í morgun. Hann segir þau bæði hafa komið fyrir sjónir eins og venjulegt fólk og að þau hafi ekki verið súr þó hann smellti af þeim nokkrum myndum. Hann segir Stiles hafa verið ein síns liðs en Whitaker var á ferð með konu sinni. Þau eru komin hingað til lands til þess að leika í kvikmynd Baltasars Kormáks, "A Little Trip to Heaven", en tökur á henni hefjast þann 24. ágúst næstkomandi. Stiles er einkum þekkt fyrir leik sinn í myndunum Ten Things I Hate About You, Hamlet, Mona Lisa Smile og nú síðast lék hún í the Bourne Supremacy. Forrest Whitaker hefur jafnan valið sér hlutverk sem honum finnast spennandi, fremur en þau sem borga best, en hann hefur meðal annars leikið í myndunum Phone Booth, Ghost Dog, the Crying Game og Good Morning Vietnam. Með þeim tveimur í myndinni leikur svo Jeremy Renner, minna þekktur leikara sem einhverjir kannast þó hugsanlega við úr spennumyndinni SWAT.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Sjá meira