Innlent

Hlé gert á kolmunnaveiðum HB Granda

Hlé hefur verið gert á kolmunnaveiðum HB Granda og hefur skipum félagsins verið lagt til 15. ágúst næstkomandi.

Fram kemur á vef HB Granda að veiði hefur verið lítil undanfarið og lönduðu skipin rúmum 2.000 tonnum samtals um helgina. 10.600 tonn af 73.800 tonnum eru nú eftir af kolmunnakvóta félagsins. Hléið verður nýtt til að koma í gagnið nýju löndunarhúsi á Vopnafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×