Sport

Man Utd í undanúrslitin

Manchester United tryggði sér í dag farseðilinn í undanúrslit ensku bikarkeppninnar með öruggum sigri á Southampton á St. Merys Stadium í dag með fjórum mörkum gegn engu. Roy Keane gerði fyrsta markið strax á annarri mínútu og Cristiano Ronaldo bætti öðru við rétt fyrir leikslok. Í þeim síðari var það Paul Scholes sem var í aðalhlutverki og skoraði tvö mörk, það fyrra strax eftir hlé en það síðara rétt fyrir leikslok og lokatölur því 4-0.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×